Gerast áskrifandi

Index: 0

Hampiðjan stofnar sölufyrirtæki í Ástralíu

11.02.2015

Hampiðjan stofnar sölufyrirtæki í Ástralíu

Hampiðjan hefur ákveðið að stofna sölufyrirtæki í Brisbane á austurströnd Ástralíu til að sinna þörfum markaðarins fyrir net, kaðla og ofurtóg.  

Um árabil hefur Hampiðjan rekið fyrirtækið Hampidjan New Zealand á tveim stöðum á Nýja Sjálandi og hefur það fyrirtæki selt inn á ástralska markaðinn.

Vegna fjarlægðar og dýrra flutninga hefur það ekki skilað tilætluðum árangri og því er það skref stigið að stofna nýtt fyrirtæki á þessu markaðssvæði. Fyrirtækið á Nýja Sjálandi verður rekið með óbreyttu sniði og getur nú einbeitt sér að fullu að markaðinum þar.

Samhliða því að selja vörur Hampiðjunnar mun Hampidjan Australía selja vörur til útgerðar frá öðrum framleiðendum.  Fyrir utan sölu til sjávarútvegs undanfarin ár hefur Hampiðjan selt töluvert af ofurtógi á skútumarkaðinn í Ástralíu og í olíuiðnaðinn sem er vestantil við Ástralíu.

Þess er vænst að starfsemin hefjist í lok þessa mánaðar og byggist upp að mestu innan þessa árs.

Please fill in the below details in order to view the requested content.