Hampiðjan hf.
|
Hampiðjan hf – Niðurstaða aðalfundar Hampiðjunnar hf.Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 25. mars 2022, var skýrsla stjórnar og ársreikningur fyrir árið 2021 samþykkt samhljóða. Sjálfkjörið var í félagsstjórn. Formaður félagsstjórnar Vilhjálmur Vilhjálmsson Meðstjórnendur Kristján Loftsson Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar: Tillaga um greiðslu arðs Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að á árinu 2022 vegna rekstrarársins 2021 verði greiddar 1,8 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 900 milljónir ISK. Arðurinn verði greiddur í viku 23. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 25. mars 2022, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 29. mars. Arðleysisdagurinn er 28. mars. Tillaga um þóknanir fyrir komandi starfsár Þóknun til stjórnarmanna verði 260.000 kr. á mánuði, formaður fái þrefaldan hlut. Tillaga um endurskoðunarfélag Endurskoðunarfélag verði PricewaterhouseCoopers ehf. |