Skip to main content
Financial

Hampiðjan hf. – Kynningarfundur fyrir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2024 fimmtudaginn 23. maí.

By 21/05/2024ágúst 20th, 2024No Comments

Hampiðjan hf. mun birta uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2024 eftir lokun markaða fimmtudaginn 23. maí.

Fjárfestakynning verður haldin sama dag, klukkan 16:15 í höfuðstöðvum félagsins að Skarfagörðum 4. Kynningunni verður jafnframt streymt og verður vefstreymið aðgengilegt á heimasíðu félagsins fyrir fundinn.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar á meðan á fundi stendur á netfangið fjarfestatengsl@hampidjan.is

Árshlutareikningurinn verður aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar. Upptaka af kynningunni verður einnig aðgengileg á heimasíðunni að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson, forstjóri, í síma 664-3361