Í síðasta loðnuleiðangri Árna Friðrikssonar var ný og spennandi tækni prófuð í tengslum við mælingar á loðnu. Um er ræða búnað sem kallast Fiskgreinir, þróaður af StjörnuOdda og Hafrannsóknastofnun í samvinnu við Hampiðjuna og styrkt af Tækniþróunarsjóði RannÍs. Búnaðurinn er á lokastigi hönnunar og var áður prófaður um borð í togurum, m.a. í karfarannsókn, en þetta er í fyrsta skipti sem prófun er gerð samhliða bergmálsmælingu.

Fiskgreinirinn var þróaður af StjörnuOdda og Hafrannsóknarstofnun í samvinnu við Hampiðjuna.
Fiskgreinir er hannaður sem plasthringur sem festur er fyrir framan vörpupoka og inni í hringinn eru festar tvær stereo myndavélar. Myndavélar af þessari gerð taka þrívíddarmyndir af viðfangsefninu sem gerir kleift að mæla lengd loðnunnar óháð fjarlægð frá linsu, en þeim er einnig ætlað að þjálfa tauganet (gervigreind) til að þekkja loðnuna frá öðrum tegundum. Í þessari prófun var notast við rautt ljós, sem hefur síður áhrif á atferli loðnunnar.
Hampiðjan hefur hannað sérsniðinn kapal, svokallaðan DynIce Data kapal, sem settur var í veiðarfærið og tengir tækið við skipið, svo hægt sé að streyma myndefninu í rauntíma til úrvinnslu. Með þessari rauntímagreiningu er ekki aðeins hægt að spara tíma við gagnasöfnun heldur einnig þjálfa tauganetið til að þekkja og mæla loðnuna sjálfvirkt. Með því að nota þennan búnað samhliða bergmálsmælingu má auka nákvæmni á greiningum.

Fiskgreinirinn skilar skýrri mynd í brú skips í rauntíma í gegnum DynIce Data kapalinn.
Fyrstu niðurstöður prófunarinnar eru hvetjandi og benda til þess að tæknin geti skilað aukinni nákvæmni bergmálsmælinga með því að sjá hvað er að koma inn í vörpuna á hverjum stað og dýpi og hvernig samsetning torfunnar er með tilliti til aldurs eða tegundar.
Verkefnið sýnir vel hvernig samvinna vísindastofnana og hátæknifyrirtækja getur leitt til nýsköpunar sem bætir bæði rannsóknir og atvinnuveiðar. Með frekari þróun er stefnt að því að innleiðing hennar verði möguleg í atvinnuveiðum innan skamms, sem mun efla frekar þekkingu okkar um líffræðilega eiginleika hafsins en jafnframt auka nákvæmni veiða og spara þannig tíma og orku.
Verkefnastjóri á þessari þróunarvinnu er Haraldur A. Einarsson en leiðangursstjóri við þessa prófun var Teresa Sofia Giesta da Silva.
Hér má sjá stutt myndbrot úr myndavél greinisins í hafinu.
Frétt og myndir frá Hafrannsóknarstofnun.