Skip to main content

Þegar útgerðarfélagið Gjögur tók nýtt skip, Hákon ÞH 250, í notkun, var ráðist í að festa kaup á nýjustu gerð fjarstýrðra Thyborøn-hlera. Um er að ræða týpu 42, 12 m² að stærð og 4.700 kg að þyngd, og eru þeir fyrstu sinnar tegundar sem fara á íslenskt skip. Nú, tæpu ári síðar, liggur fyrir reynsla af þeim – og hún er jákvæð í alla staði.

Jón Þór Björnsson, skipstjóri á Hákoni ÞH 250.

Jón Þór Björnsson, skipstjóri á Hákoni ÞH 250, segir að hlerarnir hafi reynst vonum framar. Hann lýsir þeim sem langbestu hlerum sem hann hefur dregið. „Þeir eru stöðugir í köstum og hífingum, liprir í allri vinnslu og ótrúlega léttir í drætti miðað við þyngd.“ Hann segir þá jafnframt sterklega og endingargóða – „þetta er alvöru járn, ekkert pjátur“ – og að þeir komi alltaf réttir upp. „Það er frábært að vinna með þá og ég held að þeir muni endast vel enda sér ekki á þeim eftir tæpa árs notkun,“ bætir hann við.

Jón Þór bendir á að fyrstu mánuðina hafi hlerarnir verið notaðir án stýribúnaðar, og þá hafi þeir þegar sýnt sig sem traustur og lipur búnaður sem auðveldaði alla vinnu. „Við vorum strax ánægðir, þeir komu alltaf réttir og voru fljótir í skver,“ segir hann.

Það er þó stýribúnaðurinn sem markar stærsta skrefið að sögn Jóns Þórs. Allur búnaðurinn og hugbúnaðurinn er hannaður og framleiddur af Thyborøn og með honum er hægt að breyta stöðu og virkni hleranna úr brúnni á meðan á veiðum stendur. Hann segir þetta vera „algjöra byltingu“ og bendir á að þeir hafi ekki misst hlerana upp úr yfirborðinu í allt sumar þrátt fyrir krappar beygjur.

Að sögn Jóns Þórs hefur þessi tækni aukið skilvirkni veiðarfæranna verulega. „Hlerarnir halda veiðarfærunum stöðugum í beygjum og trollið er alltaf réttara aftan í og ég er laus við áhyggjur. Mistog og skekkja eru minni og það fer betur með veiðarfærin. Við getum létt á snúningum í miklum straumum með því að minnka skverið og veiðarfærið klárar sig miklu betur aftur inn í beygjum og snúningum,“ útskýrir hann.

Ákvörðunin um að fjárfesta í fjarstýrðum Thyborøn-hlerum á Hákon ÞH 250 var tekin eftir mikla yfirlegu og ítarlega skoðun á mörgum valkostum. „Við vorum með ýmislegt á borðinu en ég sé ekki eftir þessu vali,“ segir skipstjórinn og hrósar um leið tækniþjónustunni. „Það nægir eitt símtal og aðstoðin er komin.“

Í dag eru um 40 skip skip með fjarstýrða hlera frá Thyboron víðsvegar um heiminn.  Hampiðjan Ísland er umboðsaðili Thyborøn á Íslandi og sá um söluna á hlerunum til Gjögurs.