Nýlega tók Skinney-Þinganes í notkun nýja Týpu 28 toghlera frá Thyborøn Trawldoor fyrir togarann Þinganes SF-25.
Um er að ræða botnhlera með glussatjakki sem gerir kleift að minnka eða stækka hlerana eftir því sem við á þegar þeir hanga aftan á skipinu. Þessi búnaður er af sömu gerð og notaður er í fullfjarstýrðum hlerum og telst þetta mikilvægt skref í átt að aukinni sjálfvirkni í stjórnun botnhlera hér á landi.
Með tilkomu breytanlegra og að hluta fjarstýrðra botnhlera skapast forsendur til nákvæmari stillinga og betri stjórnunar við breytilegar aðstæður á botni. Uppsetningin um borð í Þinganes SF-25 markar þannig upphaf innleiðingar á nýrri tækni í íslenskum botnfiskveiðum.
Hampiðjan er umboðsaðili Thyborøn Trawldoor á Íslandi og hefur haft umsjón með afhendingu og þjónustu við búnaðinn.

