Hampiðjan hefur móttekið meðfylgjandi ályktunartillögu fyrir aðalfund Hampiðjunnar hf. frá hluthöfum. Um er að ræða tillögu undir liðnum önnur mál um að komið verði á fót tilnefningarnefnd. Þá hefur stjórn félagsins ákveðið að uppfæra tillögu sína um starfskjarastefnu félagsins með því að bæta við 8 grein starfskjarastefnunnar eftirfarandi setningu: „Kaupaukar til forstjóra og annarra æðstu stjórnenda Hampiðjunnar hf. skulu að hámarki nema 5 mánaða grunnlaunum fyrir viðkomandi rekstrarár.„
Meðfylgjandi er ályktunartillagan frá hluthöfum ásamt uppfærðri tillögu stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.
Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson forstjóri í síma 664 3361

