Hampiðjan hefur afhent björgunarskipinu Guðmundi í Tungu dráttartaugar úr Robus ofurefninu að gjöf. Skipið er staðsett á Ísafirði og styrkir viðbragðsgetu á svæðinu verulega en það var tekið í notkun við hátíðlega athöfn í nóvember 2025.
Um er að ræða 50 m og 150 m langar Robus 24/28 mm dráttartaugar með fléttaðri hlífðarkápu sem ver þær gegn núningi og skemmdum. Með fylgja 2,3 m teygjuleggir og fjórir 24 mm Robus hraðlásar sem gera kleift að setja taugarnar saman á fljótlegan og öruggan hátt og festa þær við það sem á að toga.
Verðmæti gjafarinnar er um tvær milljónir króna. Snorri Sigurhjartarson, rekstrarstjóri Hampiðjunnar Íslands á Ísafirði, afhenti gjöfina og Gauti Geirsson, formaður Björgunarbátafélags Vestfjarða, veitti henni viðtöku fyrir hönd félagsins.
Robus dráttartaugar hafa sama slitstyrk og togvírar í sambærilegu þvermáli en eru mun léttari og meðfærilegri í notkun. Þær henta því afar vel til dráttar í höfnum og á úthafi, auk þess sem þær nýtast við björgunaraðgerðir þar sem áreiðanleiki og öryggi skipta sköpum. Léttleiki tógsins dregur úr álagi við vinnu á dekki og auðveldar meðhöndlun, en jafnframt er slitþol og ending hönnuð með það fyrir augum að standast mikla notkun og álag til lengri tíma.
Slysavarnafélagið Landsbjörg á og rekur 13 stór björgunarskip sem staðsett eru hringinn í kringum landið sem einingar félagsins sjá um og manna til þess að sinna útköllum á sjó á hafsvæðinu við Ísland. Undanfarin ár hefur verið unnið að því að endurnýja flotann sem kominn var til ára sinna. Nú þegar eru sex ný björgunarskip komin til landsins, í Vestmannaeyjum, á Siglufirði, í Reykjavík, á Rifi, Höfn og nú á Ísafirði.
Björgunarskipin gegna lykilhlutverki í öryggi sjómanna og annarra sæfarenda. Það er því mikilvægt að þau séu vel útbúin og hafi aðgang að búnaði sem stenst þær kröfur sem gerðar eru við krefjandi aðstæður á sjó. Með gjöfinni vill Hampiðjan leggja sitt af mörkum til að tryggja öryggi sæfarenda við strendur Íslands.

