Hampiðjan hefur hafið umfangsmikla uppbyggingu á nýju iðnaðarsvæði í Auric við Aurangabad á Indlandi, í kjölfar kaupa félagsins á indverska fyrirtækinu Kohinoor.
Síðastliðið haust var gengið frá kaupum á 120.000 fermetra lóð á iðnaðarsvæðinu í Auric, með heimild til að byggja allt að 76.000 fermetra. Þar er nú hafin bygging tveggja 28.000 fermetra verksmiðjuhúsa, annars vegar netaverkstæðis fyrir fiskeldisnet og veiðarfæri og hins vegar verksmiðju fyrir net. Samhliða verður reist 2.000 fermetra skrifstofuhúsnæði og 1.200 fermetra þjónustu- og mötuneytisaðstaða fyrir starfsmenn, sem verða um 750 þegar starfsemin verður komin í fullan gang. Heildarbyggingarmagn í þessum fyrsta áfanga nemur því 59.200 fermetrum.
Samið var við byggingafyrirtækið SCON um verkið en það er stórt og öflugt byggingafyrirtæki með um 6.000 starfsmenn og þar af eru um 1,200 verkfræðingar. Þegar mest verður munu verða um 500 starfsmenn á byggingarsvæðinu því framkvæmdahraðinn verður mikill.

Byggingarlandið á hinu nýja iðnaðarsvæði í Auric á Indlandi.
Gert er ráð fyrir að fyrra verksmiðjuhúsið verði tilbúið í lok júlí og það síðara í lok ágúst. Skrifstofu- og þjónustubyggingarnar eiga síðan að vera fullbúnar í lok október og frágangi svæðisins, þar á meðal vegagerð og græn svæði, verður lokið í nóvember. Byggingarkostnaður er um 234 evrur á fermetra, sem samsvarar um 34.000 krónum sem telst lágt í alþjóðlegum samanburði. Heildarfjárfesting í byggingunum nemur um 13,8 m€ en lóðin kostaði að auki um 4,8 m€.
„Þessi uppbygging er mikilvægt skref í að styrkja framleiðslugetu okkar og auka hagkvæmni og sveigjanleika í rekstri. Með aðstöðu í Auric getum við sameinað þekkingu og reynslu Kohinoor og Hampiðjunnar og byggt upp öfluga framleiðslu fyrir bæði fiskeldi og veiðarfæri til framtíðar. Framleiðslu- og launakostnaður er afar hagstæður á Indlandi samanborið við Litháen þar sem við starfrækjum nú tvö stór netaverkstæði og tæknilega fullkomna kaðlaverksmiðju sem framleiðir hátæknitóg og lyftistroffur úr ofurefnum. Þetta ár fer að mestu í uppbygginguna og koma framleiðslunni af stað og við munum því byrja að njóta meiri hagkvæmi næsta vetur og í enn meira mæli næsta ár “ segir Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar.
Hér fyrir neðan má sjá tölvugert myndband af byggingunum eins og þær koma til með að líta út.
Uppbyggingin í Auric er jafnframt mikilvæg fyrir frekari þróun á framleiðslu fiskeldiskvía, sérstaklega úr stífu pólýetýlen neti sem þarf að handsauma því efnið er of stíft fyrir saumavélar. Slík framleiðsla er mannaflsfrek og hentar því vel á Indlandi. Framleiðsla á kvíum úr mýkri efnum, svo sem næloni og ofurefnum, er að hefjast hjá Kohinoor og jafnframt er verið að þjálfa starfsfólk í saumavinnu til að byggja upp sérhæft teymi. Áætlað er að hefja starfsemi á netaverkstæðinu í september og að uppsetning véla til netaframleiðslu á fiskeldisneti hefjist í september.
Staðsetningin í Auric býður upp á góða innviði, aðgengi að vinnuafli og hagkvæmar tengingar við bæði innlenda og alþjóðlega markaði. Nálægðin við núverandi starfsemi Kohinoor í Jalna og Selu skapar jafnframt mikilvæga samlegð í rekstri og styður við áframhaldandi vöxt Hampiðjunnar á þessu sviði.

