Starfsfólk Hampiðjunnar tók þátt í fjöruhreinsun í samstarfi við Bláa herinn þann 29. maí. Að þessu sinni var fjaran við Junkaragerði á Reykjanesi hreinsuð, en svæðið hafði ekki áður verið tekið fyrir. Aðgengi að svæðinu reyndist mjög gott og veður ágætt sem skapaði góðar aðstæður fyrir þátttakendur.
Alls tóku um 30 starfsmenn Hampiðjunnar þátt í hreinsuninni og lögðu sitt af mörkum við að fjarlægja rusl úr fjörunni. Þegar upp var staðið höfðu safnast um 1000 kíló af úrgangi, sem skiptist í 300 kg af veiðarfærum, 60 kg af málmum, 10 kg af spilliefnum og annar grófur úrgangur var 630 kg.
„Það er ánægjulegt að sjá hversu margt starfsfólk Hampiðjunnar tekur þátt í verkefnum sem þessum. Við leggjum áherslu á að taka
virkan þátt í verkefnum sem tengjast hafinu og umhverfinu, enda er það nátengt starfsemi okkar. Samstarfið við Bláa herinn hefur verið farsælt í gegnum árin og við erum stolt af því að styðja við það mikilvæga starf sem þar er unnið,“ sagði Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar.
Hampiðjan hefur um árabil stutt við starfsemi Bláa hersins og er aðalstyrktaraðili verkefnisins. Samstarfið byggir á sameiginlegri sýn um mikilvægi þess að draga úr mengun sjávar og stuðla að bættri umgengni við náttúruna.
„Það skiptir miklu máli að fá fyrirtæki eins og Hampiðjuna með í verkefni af þessu tagi. Auk þess að vinnan sjálf skili góðum árangri skapar þátttakan aukna vitund um mikilvægi þess að hlúa að strandlengjunni og náttúrunni í kringum okkur. Svo finnst mér þessi dagur með starfsfólki Hampiðjunnar skemmtilegasti hreinsunardagur ársins og hann er alltaf mikið tilhlökkunarefni,“ sagði Tómas Knútsson, stofnandi Bláa hersins.
Hampiðjan vill færa öllum þátttakendum bestu þakkir fyrir framlag sitt og þann metnað sem lagður var í verkefnið.

