Vertu skrefi á undan og skráðu þig á póstlistann

Fréttir og nýjungar frá Hampiðjunni beint í pósthólfið.

Á vormánuðum og fram á sumar hefur verið unnið að tveimur umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum innan samstæðu Hampiðjunnar.

Sameining starfsemi í veiðarfæragerð í Noregi

Fyrra verkefnið snýr að sameiningu tveggja norskra dótturfélaga samstæðunnar sem starfa við veiðarfæragerð og sölu búnaðar til útgerða.

Við stofnun ELDI, þar sem starfsemi samstæðunnar á sviði fiskeldis var sameinuð í eitt félag, var Vonin Refa í Norður-Noregi skipt upp í tvær einingar. Fiskeldisstarfsemin varð hluti af ELDI, en veiðarfæragerðin hélt áfram undir nafni Vonin Refa með starfsemi aðallega í Tromsø og Finnsnes.

Hampiðjan á jafnframt félagið Mørenot Fishery í Noregi, sem sinnir veiðarfæragerð og þjónustu við útgerðir víða um land.

Markaðsaðstæður í þessum geira hafa verið krefjandi undanfarin ár. Þar vegur þyngst samdráttur í veiðum á Barentshafsþorski í kjölfar kvótaniðurskurðar, ásamt banni við sölu veiðarfæra til rússneskra skipa sem áður sóttu þjónustu til Noregs. Að auki hefur kvóti í makríl og kolmunna verið skertur. Þrátt fyrir aukningu í leyfilegum afla ýsu og síldar, sem og vöxt í krabbaveiðum, vega þær breytingar ekki á móti samdrætti í öðrum helstu nytjastofnum.

Af þessum sökum hafa rekstraraðstæður Vonin Refa og Mørenot Fishery verið erfiðar, sérstaklega á yfirstandandi ári. Gripið hefur verið til umfangsmikilla hagræðingaraðgerða í báðum félögum. Eftir að starfsemi Vonin Refa var aðskilin í tvo hluta hefur skapast grundvöllur fyrir næsta skref – sameiningu félaganna undir einu nafni, Mørenot Refa.

Með sameiningunni skapast aukin tækifæri til hagræðingar, meðal annars með samnýtingu starfsstöðva, lokun óarðbærrar starfsemi og markvissari nýtingu mannafla, á sama tíma og þjónustustig er tryggt.

Sameining í framleiðslu og sölu á toghlerum

Seinna verkefnið felst í sameiningu starfsemi tengdri toghlerum, bæði hvað varðar framleiðslu og sölu- og markaðsstarf.

Innan samstæðu Hampiðjunnar hafa tvö rótgróin vörumerki verið til staðar á þessu sviði: Injector, í eigu Mørenot Fishery, og Vónin-hlerar, í eigu Vónin í Færeyjum. Bæði vörumerki njóta sterkrar stöðu á markaði.

Framleiðsla á Injector-hlerum hefur farið fram hjá dótturfélagi Mørenot Fishery, Baltic Sea Steel, í Plungė í Litháen, þar sem er áratugalöng reynsla og fullkomin aðstaða fyrir framleiðslu stærstu gerða toghlera. Vónin-hlerar hafa hins vegar verið framleiddir af undirverktaka í Litháen. Þeir einkennast af háþróaðri tækni, meðal annars með möguleika á fjarstýringu við veiðar til að hámarka opnun trolls og stilla nákvæmlega veiðidýpi.

Saman mynda þessar tvær vörulínur heildstæða lausn sem mætir ólíkum þörfum togveiðiskipa.

Í kjölfar hagræðingarinnar færist eignarhald Baltic Sea Steel að fullu til Vónin og öll framleiðsla á toghlerum verður sameinuð í Plungė og með því eykst framlegð rekstrarins.

Gert er ráð fyrir að aukin EBITDA framlegð vegna þessara hagræðingaraðgerða nemi um 1,2 m€ og komi hluta til fram á seinni hluta þessa árs, en að mestu leyti á næsta ári.