Uppbygging á nýju iðnaðarsvæði Hampiðjunnar í Auric á Indlandi gengur vel en þar er verið að byggja tvo stóra framleiðslusali sem eru 28.000 m² hvor ásamt 1.200 m² þjónustubyggingu fyrir starfsmenn og skrifstofu sem er 2.000 m². Heildarbyggingarmagn þessa áfanga er því 59.200 m². Byggingarleyfi á landinu er fyrir 16.000 m² til viðbótar sem verður nýtt síðar.
Til að setja stærðina á framleiðslusölunum í samhengi þá þekur hvor bygging fyrir sig flatarmál sem samsvarar fjórum fótboltavöllum í fullri stærð. Fyrri stóra byggingin er komin vel á veg og búist er við að hún verði tilbúin til afhendingar í lok október. Sú bygging er ætluð fyrir framleiðslu á fiskeldisnetum. Hin stóra byggingin er fyrir framleiðslu á netum fyrir bæði fiskeldi og veiðarfæri og er gert ráð fyrir að hún verði tilbúin um áramótin. Skrifstofu- og þjónustubyggingarnar fylgja síðan fljótlega í byrjun næsta árs.
Uppbyggingin í Auric hófst í kjölfar kaupa Hampiðjunnar á indverska fyrirtækinu Kohinoor og er ætlað að styrkja framleiðslugetu samstæðunnar á sviði fiskeldis og veiðarfæra.
Þegar starfsemin í Auric verður komin í fullan gang er gert ráð fyrir að þar starfi um 750 manns. Uppbyggingin skapar Hampiðjunni aukið svigrúm til að færa út kvíarnar í framleiðslu fiskeldisneta og neta fyrir veiðarfæri og nýta jafnframt þekkingu og reynslu Kohinoor og Hampiðjunnar á þessum sviðum.
Sjá má drónamyndband af byggingarstaðnum sem tekið var fyrr í þessari viku hér fyrir neðan.

