Skip to main content
Financial

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar 21. maí 2010

By 21/05/2010No Comments

Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2009.
  2. Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar ársins 2009.
  3. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
  4. Kosning stjórnar félagsins.
  5. Kosning endurskoðunarfélags.
  6. Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.
  7. Önnur mál.

Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.

Tillaga stjórnar um ráðstöfun hagnaðar

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 21. maí 2010 samþykkir að greiddur verði 12% arður vegna ársins 2009, alls að fjárhæð kr. 59.591.167. Arðurinn verði greiddur í viku 23. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 21. maí., þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 27. maí. Arðleysisdagurinn er 25. maí.

Tillaga stjórnar um þóknun stjórnarmanna

Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. 700.000, formaður taki þrefaldan hlut.

Tillaga stjórnar um endurskoðunarfélag

PricewaterhouseCoopers hf. verði kjörið til næsta árs.

Tillaga stjórnar um kaup á eigin hlutum

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 21. maí 2010 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupverð hluta skal vera hæst 15% yfir síðasta þekktu söluverði á First North markaðinum áður en kaup eru gerð.