Skip to main content
Financial

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar 27. apríl 2012

By 13/04/2012No Comments

DAGSKRÁ

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2011.
  2. Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar ársins 2011.
  3. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
  4. Kosning stjórnar félagsins.
  5. Kosning endurskoðunarfélags.
  6. Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.
  7. Önnur mál. 

Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.   

Tillaga stjórnar um ráðstöfun hagnaðar

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 27. apríl 2012 samþykkir að greiddur verði arður til hluthafa að upphæð kr. 124.148.264 sem er 1,9% af eigin fé Hampiðjunnar í árslok.  Arðurinn verði greiddur í viku 22. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 27. apríl, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 3. maí.  Arðleysisdagurinn er 30. apríl.     

Tillaga stjórnar um þóknun stjórnarmanna

Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. 700.000, formaður fái þrefaldan hlut.

Tillaga stjórnar um endurskoðunarfélag

PricewaterhouseCoopers ehf. verði kjörið til næsta árs. 

Tillaga stjórnar um kaup á eigin hlutum

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 27. apríl 2012 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu.  Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.  Kaupverð hluta skal vera hæst  15% yfir síðasta þekkta söluverði á First North markaðinum áður en kaup eru gerð.