DAGSKRÁ
Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2017.
Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar ársins 2017.
Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
Kosning stjórnar félagsins.
Kosning endurskoðunarfélags.
Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.
Önnur mál.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.
TILLÖGUR
Um greiðslu arðs:
Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2018 vegna rekstrarársins 2017 verði greiddar 0,75 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 365 milljónir ISK. Arðurinn verði greiddur í viku 23.
Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 18. apríl 2018, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 23. apríl.
Arðleysisdagurinn er 20. apríl.
Um þóknun til stjórnarmanna:
Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. 2.000.000, formaður fái þrefaldan hlut.
Um endurskoðunarfélag:PricewaterhouseCoopers ehf. verði kjörið til næsta árs.
Um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum:
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 18. apríl 2018 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi skal miða við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en kaupsamningur er gerður.
Viðhengi:
Auglysing adalfundar 18 04 2018.docx