Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2020.
Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar ársins 2020.
Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
Kosning stjórnar félagsins.
Kosning endurskoðunarfélags.
Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.
Önnur mál.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.
TILLÖGUR
Um greiðslu arðs:
Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2021 vegna rekstrarársins 2020 verði greiddar 1,25 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 625 milljónir ISK. Arðurinn verði greiddur í viku 23. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 26. mars 2021, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 30. mars. Arðleysisdagurinn er 29. mars.
Um þóknun til stjórnarmanna:
Þóknun til stjórnarmanna verði 235.000 kr. á mánuði árið 2021, formaður fái þrefaldan hlut.
Um endurskoðunarfélag:
PricewaterhouseCoopers ehf. verði kjörið til næsta árs.
Um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum:
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 26. mars 2021 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi skal miða við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en kaupsamningur er gerður.
Við notum vafrakökur til að tryggja að þú fáir bestu upplifun á vefsíðunni okkar. Ef þú heldur áfram að nota þessa síðu gerum við ráð fyrir að þú sért sáttur við það.Í lagiNei