Skip to main content
Financial

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar er haldinn verður 31. mars 2017, kl. 16:00

By 16/03/2017No Comments

DAGSKRÁ

1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2016.

2. Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar ársins 2016.

3. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.

4. Kosning stjórnar félagsins.

5. Kosning endurskoðunarfélags.

6. Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.

7. Önnur mál.

Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.

TILLÖGUR

Um greiðslu arðs:

Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2017 vegna rekstrarársins 2016 verði greiddar 1,00 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 486,6 milljónir ISK. Arðurinn verði greiddur í viku 22.

Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 31. mars 2017, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 4. apríl. Arðleysisdagurinn er 3. apríl.

Um þóknun til stjórnarmanna:

Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. 1.750.000, formaður fái þrefaldan hlut.

Um endurskoðunarfélag:

PricewaterhouseCoopers ehf. verði kjörið til næsta árs.

Um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum:

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 31. mars 2017 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi skal miða við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en kaupsamningur er gerður

Viðhengi:

auglysing-adalfundar-31-03-2017.pdf