Skip to main content
Financial

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar er haldinn verður 5. apríl 2019, kl. 16:00

By 22/03/2019No Comments

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar er haldinn verður 5. apríl 2019, kl. 16:00

DAGSKRÁ

 

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2018.
  2. Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar ársins 2018.
  3. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
  4. Kosning stjórnar félagsins.
  5. Kosning endurskoðunarfélags.
  6. Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin hlutum.
  7. Önnur mál.

 

Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.   

 

TILLÖGUR

Um greiðslu arðs:

Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2019 vegna rekstrarársins 2018 verði greiddar 1,00 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 490 milljónir ISK.  Arðurinn verði greiddur í viku 23. 

Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 5. apríl 2019, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 9. apríl. 

Arðleysisdagurinn er 8. apríl.

 

Um þóknun til stjórnarmanna:

Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. 2.200.000, formaður fái þrefaldan hlut.

Þóknun til stjórnarmanna verði 200.000 kr. á mánuði árið 2019, formaður fái þrefaldan hlut.

 

Um endurskoðunarfélag:

PricewaterhouseCoopers ehf. verði kjörið til næsta árs. 

 

Um heimild stjórnar til kaupa á eigin hlutum:

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 5. apríl 2019 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu.  Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.  Kaupgengi skal miða við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en kaupsamningur er gerður.

hampidjan-auglysing-adalfundar-05-04-2019.pdf