Index: 0

AÐALFUNDUR HAMPIÐJUNNAR HF. - 18. MARS 2016

4.03.2016

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn að Skarfagörðum 4, Reykjavík, föstudaginn 18. mars 2016 og hefst kl. 16:00.

Á dagskrá fundarins verða:

  1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins.
  2. Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr. hlutafélagalaga.
  3. Önnur mál, löglega upp borin.

Dagskrá, endanlegar tillögur ásamt ársreikningi félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, tveimur vikum fyrir aðalfund.

Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.

Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm dögum fyrir upphaf aðalfundar.

Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundi, skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en 10 dögum fyrir aðalfund.

Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skriflega eða með rafrænum hætti og þannig að dagsetning komi fram.

Stjórn Hampiðjunnar hf.

Please fill in the below details in order to view the requested content.