Index: 0

Dagskrá og tillögur fyrir aðalfund Hampiðjunnar er haldinn verður 28. maí 2021, kl. 16:00

14.05.2021

Dagskrá

  1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemina árið 2020.
  2. Staðfesting ársreiknings og ráðstöfun hagnaðar ársins 2020.
  3. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
  4. Kosning stjórnar félagsins.
  5. Kosning endurskoðunarfélags.
  6. Önnur mál.

Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.

TILLÖGUR

Um greiðslu arðs:

Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2021 vegna rekstrarársins 2020 verði greiddar 1,25 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 625 milljónir ISK.  Arðurinn verði greiddur í viku 23. 
Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 28. maí 2021, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 1. júní. 
Arðleysisdagurinn er 31. maí.

Um þóknun til stjórnarmanna:

Þóknun til stjórnarmanna verði 235.000 kr. á mánuði árið 2021, formaður fái þrefaldan hlut.

Um endurskoðunarfélag:

PricewaterhouseCoopers ehf. verði kjörið til næsta árs.


AðalfundurHampiðjunnar maí 2021.pdf

Please fill in the below details in order to view the requested content.