Index: 0

Hampiðjan hf. eignast 45% hlut í netaverkstæðinu Sílnet í Færeyjum

19.11.2014

Hampiðjan hefur ásamt útgerðafélaginu P/f Varðin í Syðri Götu í Færeyjum keypt 90% hlut í netaverkstæðinu Spf Sílnet i Klaksvik á Borðey.  Seljendur eru stofnandinn Kristian Sofus og tveir meðeigendur hans.   Kristian heldur eftir 10% hlut og starfar áfram hjá fyrirtækinu eftir kaupin og verður framleiðslustjóri fyrirtækisins. Hlutur Hampiðjunnar og Varðin skiptist jafnt í tvo 45% hluti.   Kaupverð Hampiðjunnar á sínum hlut er 0,6 milljónir DKK.  Samhliða kaupunum þá er hlutafé félagsins aukið umtalvert til að gera því kleift að kaupa hentuga byggingu og þann tækjabúnað sem þarf á netaverkstæðið til að sinna viðhaldi á flottrollum og nótum.    

Hlutafjáraukningin er 3,0 milljónir DKK frá hvoru félagi fyrir sig eða 6,0 milljónir DKK alls. 

Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar:

Hampiðjan hefur framleitt og selt Gloríu flottroll og flottrollspoka til allflestra uppsjávarskipa Færeyinga undanfarin ár ásamt því að selja DynIce Togtaugar og DynIce Data höfuðlínukapla á nýjustu skip flotans.  Samstarf okkar við Færeyinga hefur verið afar ánægjulegt og það er okkur því mikið gleðiefni að geta nú þjónustað færeyska fiskveiðiflotann á heimavelli í samstarfi við Varðin sem er eitt öflugasta útgerðafyrirtæki Færeyja og Kristian Sofus í Lambanum stofnanda Sílnets.  

Sílnet var stofnað fyrir rúmum 12 árum og var netaverkstæðið  lengst af starfrækt í Götu en er nú flutt í stóra og myndarlega 1.900 m2 og 85 metra langa byggingu við höfnina í Klaksvik þar sem verður hægt að þjónusta og setja upp botntroll, flottroll og nætur.

Framkvæmdastjóri Sílnets verður Hans Jacob Paulsen en hann þekkir vel til sjávarútvegsgeirans enda starfað lengi við veiðarfæragerð og sölu á veiðarfærum til útgerðafyrirtækja í Færeyjum.

Please fill in the below details in order to view the requested content.