Index: 0

Hampiðjan hf. - Kynningarfundur fyrir uppgjör þriðja ársfjórðungs 2023 fimmtudaginn 23. nóvember.

21.11.2023

Hampiðjan hf. mun birta uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung 2023 eftir lokun markaða fimmtudaginn 23. nóvember.

Fjárfestakynning verður haldin sama dag, klukkan 16:15 í höfuðstöðvum félagsins að Skarfagörðum 4. Kynningunni verður jafnframt streymt og verður vefstreymið aðgengilegt á heimasíðu félagsins fyrir fundinn.

Fjárfestum er velkomið að senda spurningar á meðan á fundi stendur á netfangið fjarfestatengsl@hampidjan.is

Árshlutareikningurinn verður aðgengilegur á heimasíðu Hampiðjunnar. Upptaka af kynningunni verður einnig aðgengileg á heimasíðunni að fundi loknum.

Nánari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson, forstjóri, í síma 664-3361

Please fill in the below details in order to view the requested content.