Index: 0

Hampiðjan hf. – viljayfirlýsing vegna kaupa á 68% eignarhlut í Voot Beitu ehf.

12.04.2017

Hampiðjan hefur undirritað viljayfirlýsingu vegna kaupa á 68% hlut í félaginu Voot Beitu ehf. Seljendur eru Vísir hf. og Eignarhaldsfélagið Gráklettur ehf. Seljendur munu þó áfram vera hluthafar í félaginu, verði af kaupum Hampiðjunnar.

Voot Beita er staðsett í Grindavík. Félagið selur veiðarfæri og beitu fyrir allar stærðir línubáta ásamt sjóvinnufatnaði undir merkinu MarWear ásamt ýmsum öðrum aðföngum. Félagið starfrækir níu afgreiðslustaði um land allt, í Grindavík, Rifi, Bolungarvík, Þingeyri, Dalvík, Djúpavogi, Þorlákshöfn, Reykjavík og Hafnarfirði.

Með kaupunum mun Hampiðjan bæta við sig starfsemi á sviði línuveiða og beitusölu ásamt sjófatnaði. Viðbótin mun bæði breikka vöruframboð samstæðu Hampiðjunnar, styrkja þjónustunetið og auka þjónustu við viðskiptamenn bæði innanlands og erlendis. Skörun á vöruframboði Hampiðjunnar og Voot Beitu er hverfandi en hagræðingarmöguleikar og samlegðaráhrif eru töluverð bæði á Íslandi og erlendis hjá dótturfyrirtækjum innan Hampiðjusamstæðunnar.

Velta Voot Beitu á síðasta ári var 1.258 milljónir króna og EBITDA um 47 milljónir. Starfsmenn eru 6.

Fyrirvari er gerður varðandi samþykki samkeppnisyfirvalda vegna kaupanna. Auk þess eru gerðir fyrirvarar vegna endanlegrar niðurstöðu áreiðanleikakannana sem kaupandi mun framkvæma á félaginu. Kaupandi og seljendur vinna, samhliða gerð áreiðanleikakannana, að endanlegri ákvörðun um kaupverð og frekari forsendur kaupanna. Í kjölfar þess að aðilar hafa komið sér saman um helstu forsendur og kaupverð og ásamt afléttingu fyrirvara verður tilkynnt um endanlegt kaupverð eignarhlutarins.

Frekari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson forstjóri í síma 664-3361

Please fill in the below details in order to view the requested content.