Á hverju ári stefnir starfsfólk Hampiðjunnar á að taka höndum saman við Bláa Herinn og leggja sitt af mörkum til hreinsunar á fjörum landsins. Síðastliðinn föstudag lá leiðin í Mölvík á Reykjanesi, sem staðsett er skammt austan við Brimketill, þeirri mögnuðu náttúruperlu. Þar var unnið af miklum krafti í afar góðu veðri en á svæðinu var logn, hlýtt og sólin skein í heiði.
Þátttaka meðal starfsfólks var góð enda er hreinsunin framkvæmd á venjulegum vinnudegi og allir þeir sem geta verið frá vinnu án þess að skerða þjónustu taka þátt og það tryggði að hægt væri að hreinsa þennan hluta strandlengjunnar að fullu.
Fjörur Íslands bera iðulega með sér merki mannlegrar starfsemi á hafi úti, og Mölvíkin er þar engin undantekning. Mikill hluti þess úrgangs sem í þeim finnst tengist veiðum en sumt draslið var greinilega margra áratuga gamalt, sem sýnir mikilvægi þessa hreinsunarstarfs því plastefni geta legið lengi í náttúrunni án þess að brotna niður. Hlutfall nýlegs veiðarfæraútgangs var hverfandi í Mölvíkinni sem gefur vísbendingu um að meðvitund um þessa mengun fer vaxandi og minna lendir í sjónum af mannavöldum. Þrátt fyrir það ber sjórinn mikið magn af rusli í fjörur landsins og verkefnið fram undan er stórt.
Að lokinni hreinsun safnaðist hópurinn saman við Brimketilinn þar sem Grillvagninn sá um að grilla hamborgara fyrir mannskapinn og skapaði það góða stemningu og samveru að lokinu vel unnu dagsverki.
Blái herinn, sem stofnaður var 1995 af Tómasi J. Knútssyni, er umhverfissamtök sem hafa átt stóran þátt í að beina athygli að mengun við strendur Íslands og hefur verið fremstur í flokki þegar kemur að því að hreinsa hana upp. Markmiðið er skýrt: að stuðla að hreinni náttúru og minna á ábyrgð okkar allra gagnvart lífríki sjávar og strandlengjunnar.
Hampiðjan er aðalstyrktaraðili Bláa Hersins og hefur um árabil stutt samtökin með föstum fjárframlögum og beinni þátttöku í hreinsunarstarfi. Þessi viðburður er hluti af stærri sýn fyrirtækisins um sjálfbærni og samfélagsábyrgð – fyrirtækið vill leggja sitt af mörkum til að strandlengja Íslands verði hrein og laus við plast og veiðarfæraúrgang.