Gerast áskrifandi

Index: 0

FERÐ HAMPIÐJUNNAR Í TILRAUNATANKINN Í HIRTSHALS

13.09.2023

Hampiðjan stendur fyrir ferð í tilraunatankinn í Hirtshals í Danmörku 28. nóvember – 2. desember n.k.  þar sem hin ýmsu veiðarfæri verða sýnd og prófuð.  Í þessum ferðum eru skoðuð bæði botn- og flottroll ásamt því að kynntar eru nýjungar í framleiðsluvörum Hampiðjunnar.  

Samstarfsaðilar Hampiðjunnar í þessari ferð verða hleraframleiðandinn Thyborøn og Simberg, umboðsaðili Simrad á Íslandi.  Thybøron mun kynna nýjungar í hlerum og Simberg það nýjasta sem í boði er frá Simrad.

Dagskráin fer að mestu leiti fram í tilraunatanknum en einnig verða haldnir fyrirlestrar og fræðslufundir um tengd efni.   Auk þess verður boðið upp á skoðunarferð í Karstensens skipasmíðastöðina í Skagen.

Við höfum miklar væntingar um góða þátttöku því þessar ferðir eru frábær vettvangur manna í þessar grein til að hittast og kynnast betur.


Frekari upplýsingar gefa Einar P. Bjargmundsson, sími 664 3360 eb@hampidjan.is og Magnús Guðlaugsson, sími 664 3352 magnusg@hampidjan.is.

Please fill in the below details in order to view the requested content.