Gerast áskrifandi

Index: 0

Hampiðjan kynnti margar nýjungar í Hirtshals - ómetanlegt að sýna veiðarfæranýjungar í tilraunatönkum

19.12.2014

Ómetanlegt að sýna veiðarfæranýjungar í tilraunatönkum

 

P1160796

Árleg desemberferð Hampiðjunnar til Hirtshals í Danmörku er nýlokið og þóttist takast frábærlega. Margar nýjungar voru kynntar. Ferðin er þó ekki síst til þess að styrkja tengsl við viðskiptavini.

Betra og breiðara makríltroll minnkar meðafla
Hampiðjan var við tilraunatankinn í Hirtshals í Danmörku þann 3.-5. desember s.l og voru þátttakendur 85 frá fjórtán löndum. „Þarna voru allir helstu útgerðarmenn og skipstjórar stærstu fyrirtækja í þessum bransa í heiminum,“ segir Haraldur Árnason, markaðs- og sölustjóri togveiðarfæra hjá Hampiðjunni. „Við vorum bæði með fyrirlestra og sýningar á okkar vörum og fórum yfir allar nýjungar, svo sem DynIce togtaugar, Gloriu troll, poka o.fl.   Sömuleiðis hafi starfsmenn frá FURUNO í Noregi verið með kynningu á nýja höfuðlínumælinum sem vakti athygli.  Þá hafi þeir sýnt hlera frá Thyboron og nýjungar frá þeim.  Við fórum líka í gegnum alla Gloríu og botntrolla flóruna okkar og sýndum í tankinum allar gerðir og nýjungar sem henni tengjast. Trollin eru þá sköluð niður og virkni og stillingar sýndar fyrir hvert einstakt veiðarfæri. Hann segir að nýtt makríltroll, Gloría Helix 1760 4-WIDE, hafi líka verið sýnt. „Það voru fjögur skip sem notuðu það á árinu með mjög góðum árangri og það vakti mikla athygli. Helstu kostir trollsins eru þeir að trollið eru með meiri breidd en gengur og gerist eða 1 á móti 4, en opnunin er 50m á hæð og 200m milli vængenda .“ Með þessari miklu breidd komi meira af hreinum makríl í trollið og minna af meðafla. Segja má að forveri 4-WIDE hafi verið Gloría 1600 og voru hlutföll í því 1:3 og segir Haraldur athyglisvert að þrátt fyrir að breiddin sé meiri hafi togmótstaða ekki aukist heldur sé hún nánast sú sama.  Það sem er sérstakt við þetta troll er að þarna fóru saman hugvit hönnuða Hampiðjunnar í mjög nánu samstarfi við skipstjóra sem stunda þessar veiðar og þeirra hugmyndir notaðar við að þróa betra og öflugra veiðarfæri og það hafi svo sannarlega heppnast vel.

Sterkt samspil DynIce togtauga og flottrollshlera við botntrollsveiðar
Haraldur segir m.a hafi verið farið vel í notkun DynIce togtauganna og DynIce Data en þessi byltingarkennda tækni er að ryðja sér enn frekar til rúms og eru yfir 100 notendur í dag.  Í því samhengi  var skoðað sérstaklega notkun DynIce togtauga og flottrollshlera við botntroll sérstaklega með það fyrir augum að sleppa notkun lóða með þessari aðferð og heppnaðist það mjög vel, sem mun hafa í för með sér minni slysahættu og síðast en ekki síst umhverfisvænni aðferð þegar togað er yfir botn.

Helix er málið
Í tankinum var Helix þankaðallinn líka sýndur með Gloríu trollunum. „Við vorum líka með hefðbundinn Nylex kaðal í trolli og sýndum í raunstærð muninn á því að nota hann annars vegar og Helix hins vegar. Það var mjög gaman að sjá þann mun,“ segir Haraldur. „Þegar Helix er notaður eykst ummálið í trollinu um 70% sem er gífurlegur munur og kemur til af því að þankaðallinn þenst í allar áttir.“ Þrátt fyrir þetta eykst mótstaða ekki. „Um 90% af öllum Gloríu flottrollunum eru með Helix flottrollskaðli í dag.“ Kaðallinn hefur verið í framleiðslu og þróun hjá Hampiðjunni í fjórtán ár og er Helix kaðallinn í dag 4. útgáfan.


Meiri aflagæði með T-90 poka
Pokarnir sem Hampiðjan býður upp á voru auðvitað sýndir og var T-90 pokinn í aðalhlutverki. „T-90 pokanum er snúið um 90° miðað við venjulegt net og það er því togað á síðum en ekki upptökum,“ segir Haraldur. Við þetta verði opnun í möskvum meiri, eða 38% á móti 18% venjulega, og flæðið í gegnum pokann verður mun betra, eða um 90% af togferð skipsins miðað við 4 mílna togferð. Haraldur segir að þegar venjulegt net sé notað sé togmótstaða meiri og flæði inn í pokann sé 60% af togferð. „Þetta gerir að verkum að veiðarfærin eru þyngri með venjulegum poka. T-90 pokinn er hins vegar léttari og gæði aflans aukast mikið af því að netið er alltaf opið, það fer betur um fiskinn inn í pokanum.“ Haraldur segir að þrátt fyrir að aðferðin hafi verið þekkt hér á árum áður hafi veiðarfærahönnuðir fyrirtækisns unnið að þróun pokans síðustu tíu ár og séu þeir nú búnir að fullþróa hann þannig að nýtni hans sé hámörkuð.  Vinsældir pokans hafa verið miklar og segir Haraldur að í dag séu nánast allir pokar sem Hampiðjan selji í T-90.

 

DynexQuickline&Gloria

 

Meðal annarra nýjunga sem sýndar voru í Hirtshals var líka DynIce Quickline sem er leysilína- og fellilína á trollpoka. „Nýjungin fellst í því að framleidd var ný gerð af yfirfléttuðum kaðli með áfestum lykkjum sem kom út úr kaðlinum með ákveðnu millibili. Með kaðlinum er hægt að mynda styrktarramma, til dæmis á trollpokum, sem kemur í staðinn fyrir vafið leisi og merktar leisilínur.
Lykkjur kaðalsins eru þræddar í gegnum kantmöskva viðkomandi nethluta og loka/festa netið með ákveðinni fellingu við hverja lykkju. Þessi aðferð auðveldar mjög alla vinnu við uppsetningu veiðarfæra því það er mun hraðvirkara að setja saman veiðarfæri með þessari aðferð en á hefðbundinn hátt.
Þá ber þess að geta að það er mun auðveldara að breyta fellingu eða öðru fyrirkomulagi með kaðlinum vegna þess hve kaðallinn er einfaldlega vel hannaður sem slíkur.“

Gott til að styrkja tengslin
Haraldur segir ferðirnar í tilraunatankinn í Hirtshals vera mjög mikilvægar fyrir fyritækið því það muni miklu að geta sýnt hvernig veiðarfærið líti út í sjó. „Svo bjóðum við viðskiptavinum líka að gera tilraunir á því hvernig þeir nota veiðarfærin, miðað við þær stillingar sem þeir nota, og það finnst skipstjórnarmönnum afskaplega gagnlegt.“ Hann segir að það sem geri ferðirnar líka  enn skemmtilegri sé að þarna hittist menn og rabbi saman. „Þetta er oft á tíðum í fyrsta sinn sem skipstjórar hittast í eigin persónu og þetta styrkir tengslin.“ Ferðirnar eiga sér orðið 25 ára sögu og skipa ríkt hlutverk í jólaundirbúningnum, segir Haraldur. „Eftir Hirtshals endum við svo oft í Köben um helgina og þar hitta menn oft konurnar og gera sér glaðan dag í jólaösinni í Kaupmannahöfn“. 

Birt með leyfi tímaritsins Sjávarafl

Please fill in the below details in order to view the requested content.