Gerast áskrifandi

Index: 0

Nýja grunnnótin virkaði vel

16.02.2022

,,Við hófum veiðar við Skarðsfjöruna og vorum svo komnir á svæðið út af Alviðruhömrum þegar við hættum veiðum og héldum til hafnar. Aflinn var um 1.800 tonn. Hann fékkst í fjórum köstum og nýja grunnnótin virkaði afar vel og stóð fyllilega fyrir sínu,” segir Bergur Einarsson, skipstjóri á uppsjávarveiðiskipinu Venusi NS. Um vika er síðan íslensku loðnuskipin skiptu yfir í nót frá flottrolli og segir Bergur að áður en haldið var frá Reykjavík hafi ný grunnnót frá Hampiðjunni verið tekin um borð.

„Nýja grunnnótin okkar er 524 metrar að lengd á korkateini og dýptin lóðrétt 126 metrar í hlutfallinu 1:4 sem kemur sér vel við það að mynda stóran hring utan um loðnutorfuna á grunna vatninu. Hún var 40 tonn að þyngd þegar hún var tekin um borð í skipið hjá Hampiðjunni við Skarfagarða í Reykjavík um síðustu helgi. Grunnnótin er afskaplega sterkbyggð úr sveru nótagarni frá 210/36 upp í 210/72 í pokanum til að þola þau átök er verða við veiðar á grunnslóð þar sem við erum að veiða niður á 80 metra dýpi og upp að 10 metra dýpi á suðurhelmingi strandlengjunnar hér við land,“ segir Bergur.

„Það eru 3600 nótaflot á korkateininum til að vega upp á móti þyngd nótaefnisins í sjónum og við hnýtum  það næstum því í tvöfaldri röð á öllum korkateininum.
Möskvastærðin í allri nótinni er 19,6 mm að undanteknum útendanum. Þess má geta að þar eru u.þ.b. 5100 möskvar í einum fermetra af útstrekktu loðnuneti í nótinni. Nótin virkaði mjög vel bæði í köstun og snurpingu og drógst mjög jöfn inn í gegnum kraftblokkakerfið aftur í nótakassann,“
segir Bergur.

„Eins og ég sagði áður að þá fengust þessi 1.800 tonn í aðeins fjórum köstum. Loðnan er mjög góð, hængur og hrygna nokkurn veginn til helminga, og hrognafyllingin er komin í 15,7%. Það dugar vel til vinnslu og aflinn á að fara til heilfrystingar,” segir Bergur.

Spáð er brælu á loðnumiðunum a.m.k. fram á miðvikudagskvöld en Bergur segir að það hafi verið komin bræla um hádegisbilið í dag.

,,Það er nokkur ferð á loðnunni og ég reikna með að hún verði komin að  Vestmannaeyjum þegar við komumst út aftur,” segir Bergur Einarsson.

Please fill in the below details in order to view the requested content.