Gerast áskrifandi

Index: 0

Ólöf Snæhólm nýr samskipta- og kynningarfulltrúi Hampiðjunnar

10.01.2024

Hampiðjan hefur ráðið Ólöfu Snæhólm Baldursdóttur í starf samskipta- og kynningarfulltrúa. Ólöf var ein 63 umsækjenda um starfið og hefur hún hafið störf.

Ólöf starfaði sem sérfræðingur í samskiptum og markaðsmálum hjá Orkuveitu Reykjavíkur í ríflega sex ár þar sem hún sá m.a. um upplýsingamál dótturfyrirtækisins Veitna. Þar áður var hún upplýsinga- og kynningarfulltrúi hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg í áratug. Ólöf lauk prófi í fjölmiðlafræði við Ohio University í Bandaríkjunum og las til meistaraprófs í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands.

”Hampiðjan er öflugt, alþjóðlegt fyrirtæki sem stendur á ákveðnum tímamótum um þessar mundir vegna aukinna umsvifa og skráningar á aðalmarkað Nasdaq Iceland. Það kallar á nýjar áherslur í samskiptum við hluthafa, viðskiptavini og aðra hagaðila.  Ég hlakka til að takast á við þær áskoranir sem því fylgja með öflugum hópi samstarfsfólks,” segir Ólöf.

Stærsta veiðarfærafyrirtæki í heimi

Rekstur Hampiðjusamstæðunnar er umfangsmikill. Fyrirtækið hefur vaxið og dafnað frá stofnun árið 1934 og er það nú stærsta veiðarfærafyrirtæki heims með 51 dótturfyrirtæki innan sinna vébanda. Samstæðan er með starfsstöðvar á 76 stöðum í 21 landi og ríflega 2.000 starfsmenn og teygir starfsemin sig frá ysta odda í Alaska í vestri og til Nýja-Sjálands í austri. Framleiðsla á netum og köðlum hefur ætíð verið kjarnastarfsemi fyrirtækisins sem síðustu tvo áratugina hefur orðið ráðandi á markaði með byltingarkenndum vörum og lausnum fyrir fiskveiðar og olíuiðnað. Hampiðjan var skráð á aðalmarkað Nasdaq Iceland í júní 2023.

”Það er mikill fengur fyrir Hampiðjuna að fá Ólöfu til starfa, hún býr að mikilli reynslu, færni og þekkingu sem eiga eftir að nýtast okkur vel í framtíðinni. Okkar bíða aðkallandi verkefni í hinum stafræna heimi ásamt miðlun upplýsinga og áframhaldandi mótun markaðsstarfs Hampiðjunnar, bæði hér heima og sem erlendis og þar kemur Ólöf sterk inn,” segir Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar.

Please fill in the below details in order to view the requested content.