Gerast áskrifandi

Index: 0

Strandhreinsun Hampiðjunnar og Bláa hersins í Selvogi

31.08.2020

Strandhreinsun Hampiðjunnar, starfsmannafélags Hampiðjunnar og Bláa hersins var haldin 29. ágúst, og í þetta skipti tók 50 manna harðsnúinn hópur starfsmanna og fjölskyldumeðlima þeirra þátt í þessum árlega viðburði.

Við tókum fyrir fjöruna austan Selvogsvita og náðum að hreinsa fullkomlega rúmlega 600 metra. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, heiðraði okkur með nærveru sinni og lagði mikið á sig og var óþreytandi að tína upp rusl sem hefur skolað upp á stöndina undanfarin ár og áratugi.

Hildur Hauksdóttir, sérfræðingur SFS, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi lét heldur ekki sitt eftir liggja og lagði góðu málefni lið. Tómas Knútsson hjá Bláa hernum og Guðmundur staðarhaldri Strandarkirkju skipulögðu viðburðinn með okkur og eiga þeir  miklar þakkir skildar fyrir allt sitt ötula umhverfisstarf með okkur og öðrum. Afraksturinn var kúfaður hálfgámur á vörubílnum okkar ásamt fullfermdri kerru Bláa hersins og  afraksturinn vóg 4,3 tonn þegar upp var staðið úr tínslunni.

Allir sem komu að þessum hreinsunardegi eiga mikið hrós skilið og áttu vonandi góðan og gefandi dag!  Fleiri myndir má sjá á Facebook síðunni  www.facebook.com/Hampidjan/posts/3281042451941535

Please fill in the below details in order to view the requested content.