Gerast áskrifandi

Index: 0

TANKFERÐ HAMPIÐJUNNAR Í TILRAUNATANKINN Í HIRTSHALS, 28. NÓVEMBER TIL 2. DESEMBER 2017

5.10.2017

Dagana 28 nóvember til 2.  desember nk. mun Hampiðjan standa fyrir hinni árlegu kynningu sinni á veiðarfærum fyrirtækisins í tilraunatanknum í Nordsjcenter í Hirtshals í Danmörku.

Auk kynningar á því hvernig veiðarfærin virka við sem raunverulegastar aðstæður verða haldnir fyrirlestrar um þróun í gerð veiðarfæra og kynntar nýjungar í flottrollum, botntrollum og hlerum sem Hampiðjan, toghlera- framleiðandinn Thyborøn og veiðistýringafyrirtækið Scanmar bjóða upp á.

Fulltrúar íslenskra útgerða verða að vanda fjölmennir ásamt fulltrúun erlendra útgerða hvaðanæva að úr heiminum.

Flugfélög eru orðin nokkuð ströng á því að hópferðir séu bókaðar með góðum fyrirvara. Við biðjum væntanlega þátttakendur að taka tillit til þess og vera í sambandi við okkur sem fyrst , með nöfn væntanlega þáttakenda.

Íslenskir Þátttakendur fljúga utan 28. nóvember en brottför heim verður þann 2. desember. Margir nota helgina 1- 3. desember til að spóka sig um í Kaupmannahöfn, enda jólaundirbúningur Dana í hámarki á þessum tíma og borgin skreytt í jólalitunum. Góð stemning hefur alltaf skapast í þessum ferðum og margir sem hitta þar betri helminginn og eiga ánægjulega helgi saman. Hampiðjan hefur pantað hótelherbergi á Mariott hotel Copenhagen http://www.marriott.com/hotels/travel/cphdk-copenhagen-marriott-hotel/ í hjarta Kaupmannahafnar. Þeir sem vilja verja helginni með okkur geta verið í sambandi við Hampiðjuna sem mun sjá um að bóka herbergi fyrir viðkomandi.

Hlökkum til að sjá sem flesta.

Nánari upplýsingar um ferðina og ferðatilhögun er að finna á meðfylgjandi tengli:

Tankbod islenska 2017.pdf

Hirtshals - Dagskra 2017.pdf

Please fill in the below details in order to view the requested content.