Gerast áskrifandi

Index: 0

TANKFERÐ HAMPIÐJUNNAR Í TILRAUNATANKINN Í HIRTSHALS 6.-9. DESEMBER 2016

26.10.2016

Dagana 6. til 9. desember nk. mun Hampiðjan standa fyrir hinni árlegu kynningu sinni á veiðarfærum fyrirtækisins í tilraunatanknum í Norðursjávarmiðstöðinni Nordsjöcenter í Hirtshals í Danmörku.

Auk kynningar á því hvernig veiðarfærin virka við sem raunverulegastar aðstæður verða haldnir fyrirlestrar um þróun í gerð veiðarfæra og kynntar nýjungar í flottrollum, botntrollum  og hlerum sem Hampiðjan og toghleraframleiðandinn Thyborön bjóða upp ásamt Scanmar sem kynnir veiðistýringarkerfi fyrirtækisins.

 

Fulltrúar íslenskra útgerða verða að vanda fjölmennir ásamt fulltrúum​ erlendra útgerða hvaðanæva að úr heiminum.

 

Flugfélög eru orðin nokkuð ströng á því  að hópferðir séu bókaðar  með góðum fyrirvara.  Við  biðjum  væntanlega þátttakendur að taka tillit til þess og vera í sambandi við okkur  sem fyrst , með nöfn væntanlegra þátttakenda.

 

Íslenskir þátttakendur fljúga utan 6. desember en brottför heim verður þann 10. desember.  Margir  nota helgina  9.-11. desember til að spóka sig um í Kaupmannahöfn, enda jólaundirbúningur Dana í hámarki á þessum tíma og borgin skreytt í jólalitunum. Góð stemning hefur alltaf skapast í þessum ferðum og margir sem hitta þar betri helminginn og eiga ánægjulega helgi saman.  Hampiðjan hefur pantað hótelherbergi á Mariott hotel Copenhagen http://www.marriott.com/hotels/travel/cphdk-copenhagen-marriott-hotel/ í hjarta Kaupmannahafnar. Þeir sem vilja verja helginni með okkur geta verið í sambandi við Hampiðjuna sem mun sjá um að bóka herbergi fyrir viðkomandi.

 

Hlökkum til að sjá sem flesta. 

 

Nánari upplýsingar um ferðina og ferðatilhögun má finna gegnum eftirfarandi tengil:

Skráning og ferðatilhögun

 

Please fill in the below details in order to view the requested content.