Árið 2014
- Rekstrartekjur voru 54,0 m€ og jukust um 7,1% frá fyrra ári úr 50,4 m€.
- Hagnaður var 7,7 m€ en var 7,6 m€ árið áður.
Lykilstærðir
- EBITDA af reglulegri starfsemi fyrir utan einskiptiskostnað vegna starfslokasamnings fv. forstjóra var 9,2 m€ en 7,8 m€ árið áður. Að teknu tilliti til starfslokagreiðlunnar sem nam 1,6 m€ þá er EBITDA 7,6 m€.
- Hlutdeild í hagnaði HB Granda var 3,2 m€ en var 3,3 m€ árið áður.
- Heildareignir voru 95,1 m€ en í lok fyrra árs var efnahagurinn 88,7 m€.
- Vaxtaberandi skuldir voru 22,8 m€ en voru 24,2 m€ árið áður.
- Eiginfjárhlutfall var 66% en 63% árið áður.
- Meðalfjöldi starfsmanna á árinu var 522 en var 509 árið þar á undan.
Rekstur
Rekstrartekjur samstæðunnar voru 54,0 m€ og jukust um 7,1% frá árinu áður.
Samstæðan samanstendur af sömu félögum og áður en með þeirri breytingu að Swan Net USA í Seattle bættist í samstæðuna í ársbyrjun 2014 og rekstur Hampidjan USA var að mestu lagður inn í Swan Net USA um mitt árið.
Rekstrarhagnaður af reglulegri starfsemi var 10,5% af rekstrartekjum að teknu tilliti til einskiptiskostnaðar eða 5,6 m€ en var 11,7% í fyrra eða 5,9 m€.
Fjármunatekjur ásamt hlutdeild í hagnaði HB Granda að frádregnum fjármagnsgjöldum voru 2,9 m€ til tekna en voru 2,2 m€ til tekna á fyrra ári.
Hagnaður ársins var 7,7 m€ en var 7,6 m€ árið 2013.
Efnahagur
Heildareignir voru 95,1 m€ og hafa hækkað úr 88,7 m€ í árslok 2013. Hækkunin er tilkomin að mestu vegna innkomu Swan Net USA ásamt hagnaði ársins.
Eigið fé nam 62,6 m€, en af þeirri upphæð eru 7,8 m€ hlutdeild minnihluta í eigin fé Swan Net Gundry á Írlandi, Swan Net USA, Fjarðaneta á Íslandi og dótturfélags Cosmos Trawl í Danmörku.
Hlutfall eigin fjár, þegar hlutdeild minnihluta er meðtalin, var í árslok 66% af heildareignum samstæðunnar.
Vaxtaberandi skuldir námu í árslok 22,8 m€ og lækkuðu um 1,4 m€ frá ársbyrjun.
Helstu tölur í íslenskum krónum
Miðað við gengi krónunnar gagnvart evru þá er velta samstæðunnar 8,4 milljarðar ISK, EBITDA að teknu tillliti til einskiptiskostnaðar 1,2 milljarðar og hagnaður svipuð tala eða 1,2 milljarðar. Efnahagurinn er 14,7 milljarðar, skuldir 5,0 milljarðar og eigið fé 9,7 milljarðar.
Aðalfundur
Aðalfundur Hampiðjunnar verður haldinn föstudaginn 27. mars 2015 í fundarsal félagsins að Skarfagörðum 4 í Reykjavík og hefst fundurinn klukkan 16:00.
Tillaga stjórnar um arðgreiðslu
Stjórn félagsins leggur til að á árinu 2015 vegna rekstrarársins 2014 verði greiddar 0,67 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 326 milljónir ISK. Arðurinn verði greiddur í viku 19. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 27. mars 2015, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 31. mars. Arðleysisdagurinn er 30. mars.
Samþykkt ársreiknings
Ársreikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi Hampiðjunnar hf. þann 12. mars 2015 Ársreikningurinn er aðgengilegur hér.
Hjörtur Erlendsson, forstjóri:
„Síðasta ár byrjaði rólega hvað sölu varðar en það lagaðist þegar leið á vorið. Sérstaklega átti það við um sölu á efnum til veiðarfæragerðar og fullbúnum veiðarfærum en þar kom tímabilið frá sumri fram að áramótum vel út. Lækkun á olíuverði hafði áhrif á sölur á þeim mörkuðum Hampiðjunnar sem tengjast olíuiðnaði en vegna þess að hráefni framleiðslunnar er að miklu leyti unnið úr olíuefnum þá jafnast áhrifin að nokkru leyti út.
Undanfarin ár hefur sala samstæðunnar aukist ár frá ári bæði vegna innri og ytri vaxtar og á árinu bættust við í samstæðuna stórt netaverkstæði í Seattle, Swan Net USA og minna netaverkstæði í Strandby í Danmörku. Þessar viðbætur tryggðu veltuaukingu samstæðunnar á árinu og munu í framhaldinu hafa jákvæð áhrif á innri vöxt næstu árin. Einnig er verið að byggja upp öflugt netaverkstæði í Klaksvik í Færeyjum ásamt útgerðarfyrirtækinu Varðin.
Rekstrarhagnaður félagsins hefur verið góður á undanförnum árum og einnig hafa fjárfestingar í öðrum félögum, sem er mestmegnis 8,83% eignarhlutur í HB Granda hf., skilað félaginu góðri ávöxtun.
Lán hafa verið greidd niður undanfarin ár samhliða því að fjárfest hefur verið í framleiðslutækjum og vöruþróun. Jafnframt hefur fyrirtækjum fjölgað í samstæðunni.“
Nánari upplýsingar
Frekari upplýsingar veitir Hjörtur Erlendsson forstjóri í síma 664 3361.
Viðurkenndur ráðgjafi
Viðurkenndur ráðgjafi Hampiðjunnar á Nasdaq First North er PwC.