Skip to main content

Hampiðjan hf. hefur undirritað samning um kaup á 75,1% hlut í indverska neta- og kaðlaframleiðslufyrirtækinu Kohinoor Ropes Pvt. Ltd.

Kohinoor er einn stærsti framleiðandi neta og kaðla á Indlandi. Starfsmenn fyrirtækisins eru rúmlega 700 og starfsstöðvarnar eru þrjár, tvær neta- og kaðlaverksmiðjur í Selu og netaverkstæði í Jalna. Félagið er einnig með skrifstofu í Aurangabad. Í heild verða starfsmenn samstæðu Hampiðjunnar um 2.700 eftir kaupin. Eigendur Kohinoor munu eiga áfram 24,9% hlut í fyrirtækinu en það hefur verið náinn samstarfsaðili samstæðu Hampiðjunnar um árabil.

Kaðla- og netaverksmiðja Kohinoor í Selu er um 35.000 m2.

Kaðla- og netaverksmiðja Kohinoor í Selu er um 35.000 m2.

Samstæða Hampiðjunnar var stærsti einstaki viðskiptavinur fyrirtækisins í fyrra enda kemur stór hluti snúinna kaðla sem Hampiðjan notar frá Kohinoor.  Samstarf hefur einnig verið mjög vaxandi í fiskeldistengdum vörum undanfarið, sérstaklega í framleiðslu á fiskeldiskvíum.

Fyrir Hampiðjuna skapa þessi viðskipti mikla möguleika á hagræðingu í reksti og sókn inn á nýja markaði. Virðiskeðja Hampiðjunnar, frá plastkornum til fullkomnustu flottrolla og fiskeldiskvía, breikkar við kaupin en þriðjungur af kaðlanotkun Hampiðjusamstæðunnar kemur í dag frá Kohinoor. Starfsemi Hampiðjunnar um allan heim mun opna nýjar söluleiðir fyrir vörur Kohinoor og bætir við það vöruúrval sem dótturfyrirtæki Hampiðjunnar bjóða í dag.

Unnið við framleiðslu á fiskeldiskvíum í Jalna.

Með kaupunum á Kohinoor opnast möguleikar á að sækja inn á markaði sem ekki hafa verið aðgengilegir vegna fjarlægðar frá Evrópu og hás framleiðsluverðs þar. Þannig hefur Kohinoor náð athyglisverðum árangri í Chile, sem er annað stærsta framleiðslulandið á laxi á eftir Noregi, og aukið aðgengi verður að fiskeldismörkuðum í Mið-Austurlöndum þar sem dótturfyrirtæki Hampiðjunnar, Mørenot Aquaculture, hefur einnig unnið að stórum fiskeldisverkefnum undanfarin ár. Þá eru tækifæri í Asíu og Eyjaálfu þar sem tvö dótturfyrirtæki Hampiðjunnar starfa, Hampidjan New Zealand og Hampidjan Australia.

 

Hjörtur Erlendsson forstjóri:

„Kaupin á meirihlutanum í Kohinoor mun auka samkeppishæfni Hampiðjunnar og auka möguleika okkar á að vera skrefum á undan keppinautum okkar á næstu árum með þeirri hagræðingu sem hægt er ná fram á skömmum tíma.

Það er mikil tilhlökkun að vinna með þessu nýja dótturfélagi í framtíðinni og við væntum mikils af þessu samstarfi á næstu árum.

Hægt er að færa innkaup á þeim vörum sem Kohinoor framleiðir en eru nú keyptar af öðrum framleiðendum og ná þar inn framlegð sem er í virðiskeðjunni til okkar. Vöruframboð Kohinoor mun auka vöruúrval fyrirtækja Hampiðjunnar víða um heim og með því auka aðgengi Kohinoor að þeim mörkuðum, sem við störfum á nú þegar, þá eykst framleiðslumagn Kohinoor og aukin framlegð skapast einnig í dótturfyrirtækjum Hampiðjunnar.

Tilflutningur á framleiðslu til Indlands mun fela í sér töluverða hagræðingu því framleiðsluumhverfið á Indlandi er afar hagstætt, land til bygginga fæst á hagstæðu verði og byggingakostnaður er brot af því sem er í Litháen svo ekki sé minnst á Ísland. Hráefniskostnaður er umtalsvert lægri en við eigum að venjast í Evrópu fyrir sömu tegundir af hráefnum.

Mestu munar þó um launakostnaðinn sem skiptir í raun mestu máli fyrir okkur því framleiðsla á efnum í veiðarfæri og fiskeldiskvíar er mannfrek og þá sérstaklega þegar kemur að samsetningu veiðarfæra og fiskeldiskvía. Launakostnaður á Indlandi er umtalsvert lægri en í sambærilegum störfum í Evrópu.

Með þessu samanlögðu getum við náð forskoti á keppinauta okkar og að auki nýtt þessa stöðu til að sækja inn á nýja og framandi markaði sem við höfum ekki selt mikið á fram að þessu.

Það eru því spennandi tímar framundan hjá okkur í samstæðu Hampiðjunnar og það er mikið kappsmál að nýta þessa stöðu sem best á komandi mánuðum og ná fram hagræðingu í haust og sem mun þá skila sér í meira mæli á næsta ári.“