Stórsýningin Verk og vit verður haldin dagana 19.–22. mars 2026 í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal og verður Hampiðjan meðal sýnenda. Sýningin er haldin í sjöunda sinn og hefur fest sig í sessi sem einn mikilvægasti vettvangur landsins fyrir fagfólk í byggingariðnaði, mannvirkjagerð, orkuiðnaði og tengdum greinum.
Á bás Hampiðjunnar verður megináhersla lögð á lyftibúnað, smurefni og ýmsar rekstrarvörur. Hampiðjan hefur á undanförnum árum byggt markvisst upp sérþekkingu í sölu, ráðgjöf og þjónustu á sviði lyftibúnaðar. Fyrirtækið leggur ríka áherslu á að lausnir séu í samræmi við gildandi reglur, öryggiskröfur og raunverulegar aðstæður hverju sinni. Jafnframt er lögð áhersla á reglubundnar skoðanir og fræðslu til notenda, með það að markmiði að draga úr áhættu og auka rekstraröryggi.
Á öllum sex starfsstöðvum Hampiðjunnar víða um land er hægt að nálgast helstu vörur og búnað til lyftinga, allt frá litlum lásum og festibúnaði upp í flóknar og sérhæfðar lyftilausnir. Með þessu tryggir fyrirtækið að viðskiptavinir hafi greiðan aðgang að vönduðum búnaði og faglegri ráðgjöf, óháð staðsetningu. Hampiðjan býður einnig gott úrval af hágæða smurefnum frá Matrix Specialty Lubricants, vinnufatnaði og alhliða rekstrarvörum.
Meðal samstarfsaðila Hampiðjunnar á sýningunni verða fulltrúar frá Riconnect og Gunnebo. Riconnect mun kynna rafræn merkispjöld og upplýsingakerfi sem nýtast meðal annars við merkingar, öryggisupplýsingar og rekjanleika búnaðar, en Gunnebo er meðal leiðandi framleiðenda heims á sviði lyfti- og festibúnaðar.
Nýlega varð Hampiðjan fullgildur aðili að LEEA, sem er alþjóðlegt samstarfsnet fyrirtækja á sviði lyftibúnaðar og tengdra lausna. Aðildin felur í sér að fyrirtækið starfar samkvæmt ströngum kröfum um gæði, fagmennsku, þjálfun starfsfólks og rekjanleika í allri þjónustu.

Jón Oddur Davíðsson, framkvæmdastjóri Hampiðjunnar Íslands.
„Aðildin að LEEA er mikilvæg staðfesting á þeirri vinnu sem við höfum lagt í uppbyggingu á þjónustu við iðnað“ segir Jón Oddur Davíðsson, framkvæmdastjóri Hampiðjunnar Íslands. „Hún staðfestir þá faglegu nálgun sem við höfum unnið eftir um árabil og styrkir stöðu okkar enn frekar gagnvart viðskiptavinum.“
Hampiðjan hvetur alla sem hafa hug á að sækja sýninguna að kíkja við á bás C52 og kynna sér þær lausnir sem Hampiðjan býður upp á.

