Skip to main content

Fyrir skömmu voru tvær fiskeldiskvíar í fullri stærð, gerðar alfarið úr endurunnu nyloni, teknar í notkun hjá norska fiskeldisfyrirtækinu Grieg Seafood en hingað til hefur ekki verið mögulegt að endurvinna nylon úr netum án þess að tapa gæðum. Fiskeldisnetin eru hluti nýsköpunarverkefnisins Circular Fish Farming Nets (CFFN) sem unnið var í samstarfi Hampiðjunnar, Nofir, AKVA Group, Aquafil og Grieg Seafood. Með því hefur verið sýnt fram á að hægt er að nota endurunnið efni í nýjar vörur án þess að skerða gæði og á sama tíma draga úr úrgangi og vernda umhverfið.

Fiskeldiskví úr endurunnu nyloni hjá fiskeldisfyrirtækinu Grieg Seafood.

Verkefnið, sem stutt er af Umhverfissjóði Verslunarinnar (Handelens Miljøfond) í Noregi, er gott dæmi um möguleika hringrásarhagkerfisins í fiskeldi og sjávarútvegi, ekki síst þar sem miklar líkur eru á að hægt sé að útvíkka það innan greinarinnar og auka þannig notkun á endurunnum plastefnum.

Nylon hefur margvísleg og mikilvæg not í nútíma sjávarútvegi, einkum í framleiðslu flottrollspoka, nóta og fiskeldiskvía. Endurunna efnið í CFFN verkefninu er unnið úr aflögðum fiskeldiskvíum frá viðskiptavinum Hampiðjunnar. Það samanstendur af netum sem lokið hafa líftíma sínum og er svo unnið í hágæða ECONYL® af garnfyrirtækinu Aquafil.

Hampiðjan hefur í mörg ár sent nylon í endurvinnslu en það hefur fram til þessa aðeins skilað afurð sem nýtist ekki til framleiðslu á nýjum þráðum vegna óhreininda auk þess sem það stenst ekki samanburð við styrk óunnins nylons. „Að sýna fram á möguleikana á virku hringrásarferli, þar sem nylon er efnafræðilega endurunnið, sendir öflug skilaboð til greinarinnar um að slík endurvinnsla er fýsilegur kostur en hún dregur úr losun gróðurhúsalofttegunda auk þess sem hún kemur í veg fyrir að efni endi í urðun eða í brennslu, segir Georg Haney, umhverfisstjóri Hampiðjunnar hf.

Dótturfyrirtæki Hampiðjunnar; Hampiðjan Baltic, Mørenot Baltic, Vonin Lithuania og Vonin Refa lögðu öll sitt af mörkum til að net úr hringrásarnyloni gæti orðið að veruleika en þau búa yfir mikilli sérþekkingu í framleiðslu og samsetningu fiskeldisbúnaðar og veiðarfæra.

Hampiðjan Group hefur unnið náið með viðskiptavinum sínum og samstarfsaðilum að því að finna leiðir til endurvinnslu á framleiðsluvörum fyrirtækisins í fiskeldi og sjávarútvegi. Fyrir utan nylon er allt PE og PP efni, auk gúmmí- og málmhluta, sent í endurvinnslu. Fyrirtæki samstæðunnar taka virkan þátt í verkefnum og samstarfi til að finna árangursríkar lausnir eða valkosti fyrir þau fáu efni sem eftir standa í vöruúrvalinu.