Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 28. mars 2014, var skýrsla stjórnar og ársreikningur fyrir árið 2013 samþykkt samhljóða.
Sjálfkjörið var í félagsstjórn.
Formaður félagsstjórnar
Vilhjálmur Vilhjálmsson, kt. 141253-4849, Sóleyjarima 51, 112 Rvk.
Meðstjórnendur
Kristján Loftsson, kt. 170343-5499, Laugarásvegi 19, 104 Rvk.
Auður Kristín Árnadóttir, kt. 130774-3349, Austurgötu 37, 220 Hafnarfirði.
Guðmundur Ásgeirsson, kt. 170939-2479, Bollagarðar 12, Seltjarnarnesi
Sigrún Þorleifsdóttir, kt. 210568-2989, Starhólma 8, Kópavogi
Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar:
Tillaga um greiðslu arðs
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 28. mars 2014 samþykkir að greiddur verði 0,54 arður af hverjum hlut útistandandi hlutafjár til hluthafa, alls að fjárhæð kr. 262.760.250. Arðurinn verði greiddur í viku 18. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 28. mars, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 2. apríl. Arðleysisdagurinn er 31. mars.
Tillaga um þóknanir fyrir liðið starfsár
Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. ein milljón og tvö hundruð þúsund, formaður fái þrefaldan hlut.
Tillaga um endurskoðunarfélag
Endurskoðunarfélag verði PricewaterhouseCoopers ehf.
Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum
Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 28. mars 2014 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkist við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi skal miða við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en kaupsamningur er gerður.