Skip to main content
Financial

Niðurstaða aðalfundar Hampiðjunnar hf.

By 18/04/2018No Comments

Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 18. apríl 2018, var skýrsla stjórnar og ársreikningur fyrir árið 2017 samþykkt samhljóða.

Sjálfkjörið var í félagsstjórn.

Formaður félagsstjórnar

Vilhjálmur Vilhjálmsson, kt. 141253-4849, Sóleyjarima 51, 112 Rvk.

Meðstjórnendur

Kristján Loftsson, kt. 170343-5499, Laugarásvegi 19, 104 Rvk. 
Auður Kristín Árnadóttir, kt. 130774-3349, Austurgötu 37, 220 Hafnarfirði.
Guðmundur Ásgeirsson, kt. 170939-2479, Bollagarðar 12, Seltjarnarnesi
Sigrún Þorleifsdóttir, kt. 210568-2989, Starhólma 8, Kópavogi

Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar: 

Tillaga um greiðslu arðs

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að á árinu 2018 vegna rekstrarársins 2017 verði greiddar 0,75 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 365 milljónir ISK.  Arðurinn verði greiddur í viku 23.  Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 18. apríl 2018, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 23. apríl.  Arðleysisdagurinn er 20. apríl.

Tillaga um þóknanir fyrir liðið starfsár

Þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið ár verði kr. 2.000.000, formaður fái þrefaldan hlut.

Tillaga um endurskoðunarfélag

Endurskoðunarfélag verði PricewaterhouseCoopers ehf. 

Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. haldinn 18. apríl 2018 veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu.  Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma.  Kaupgengi skal miða við síðasta skráða dagslokagengi á markaði áður en kaupsamningur er gerður.