Vertu skrefi á undan og skráðu þig á póstlistann

Fréttir og nýjungar frá Hampiðjunni beint í pósthólfið.

ELDI dótturfyrirtæki Hampiðjunnar í fiskeldisgeiranum og norska tæknifyrirtækið Rotor Systems hafa stofnað saman Rotor Aqua, félag sem hefur það að markmiði að þróa, innleiða og markaðssetja nýja tækni og lausnir fyrir vinnsluferla og stafræna stjórnun í fiskeldi.

Undanfari stofnunar Rotor Aqua er tveggja ára þróunarsamstarf ELDI og Rotor Systems um nýja tækni sem er nefnd BioSeize til að meðhöndla lífrænan úrgang í fiskeldi. Lausnin var kynnt á fiskeldissýningunni AquaNor síðastliðið sumar og hefur þegar verið tekin í notkun og vakið verulega athygli innan greinarinnar enda mikið skref framávið í meðhöndlun úrgangs sem annars myndi falla á botninn undir fiskeldiskvíum.

BioSeize kerfið var þróað til að safna saman óétnu fóðurkorni ásamt úrgangi frá eldisfisknum, dæla því upp á yfirborðið og koma því til vinnslu á landi. Lykilatriði í þessari tækni er að flytja úrganginn óskemmdan og í sínu upprunalegu formi með hreinu vatni því hefðbundnar aðferðir mylja og blanda öllu í einn saltan graut sem gerir flokkun á landi illmögulega. Með BioSeize aðferðinni eykst verðmæti úrgangsins, samhliða því sem hún styður við auknar kröfur um rekjanleika, líföryggi og sjálfbærni í fiskeldi.

„BioSeize-kerfið, sem samanstendur af Fish/It® og ConeCollect, er skýrt dæmi um þann árangur sem næst þegar tækniþróun og rekstrarreynsla vinna náið saman. ConeCollect safnar saman úrganginum og Fish/It er dælukerfið skilar úrgnagnum óskemmdum upp á yfirborðið. Undanfarin tvö ár hafa sýnt að samstarfið skilar miklu virði fyrir viðskiptavini okkar og með Rotor Aqua höfum við nú mun traustari grunn til áframhaldandi uppbyggingar og vaxtar,“ segja Eskil Hansen, framkvæmdastjóri Rotor Systems, og Thomas Myrvold, framkvæmdastjóri ELDI.

Tækni þróuð fyrir kröfur fiskeldisins

Líkan af BioSeize en lausnin hefur vakið verulega athygli á fagsýningum innan greinarinnar.

Fiskeldisgeirinn stendur frammi fyrir auknum kröfum um skilvirkan rekstur, betri nýtingu auðlinda, rekjanleika og sjálfbærni. Að mati samstarfsaðilanna er mikil þörf fyrir lausnir sem bæta yfirsýn og stjórn á flóknum ferlum og auðvelt er að samþætta inn í núverandi starfsemi.

„Styrkur okkar liggur í samspili þekkingar á ferlum, sjálfvirknivæðingar og stafrænna lausna. Með BioSeize höfum við þróað lausn sem tryggir mildari meðhöndlun lífræns úrgangs og er jafnframt hönnuð fyrir kröfur iðnaðarreksturs og frekari stafræna þróun,“ segir Yngve Askeland, tæknistjóri ELDI.

Næstu skref

Fyrst um sinn mun félagið leggja megináherslu á áframhaldandi þróun og sölu lausna fyrir meðhöndlun úrgangs, sjálfvirknivæðingu ferla, skynjaratækni og stafræna vettvanga. Markmiðið er að þróa búnað og lausnir sem skila mælanlegum rekstrar- og fjárhagslegum ávinningi fyrir fiskeldisfyrirtæki, bæði til skemmri og lengri tíma.

Um Rotor Systems

Rotor Systems er norskt verkfræði- og tæknifyrirtæki sem býður heildarlausnir fyrir há- og lágþrýstikerfi til meðhöndlunar úrgangs, ásamt tengdum búnaði fyrir alþjóðlegan olíu- og gasmarkað. Félagið er með starfsemi í Osló, Stavanger og Kristiansand.

Um ELDI

ELDI starfar á alþjóðlegum markaði fyrir fiskeldi og sameinar víðtæka sérþekkingu og staðbundna þjónustu á lykilmörkuðum. Félagið þróar búnað og sérhæfðar lausnir fyrir greinina, allt frá hönnun og verkfræðivinnu til uppsetningar og þjónustu. ELDI er með 510 starfsmenn og starfsemi í 12 löndum á 24 starfsstöðvum. Félaginu var formlega hleypt af stokkunum 1. janúar 2026 þegar Hampiðjan sameinaði þrjú dótturfyrirtæki sín á sviði fiskeldi, Mørenot Aquaculture, Vonin Aquaculture og Fiizk Protection, í eitt fyrirtæki og undir einu vörumerki.

Nánari upplýsingar um BioSeize má finna hér.

Mynd: Thomas Myrvold, framkvæmdastjóri ELDI og Eskil Hansen, framkvæmdastjóri Rotor Systems.