Skip to main content

Fyrir nokkru var nýtt uppsjávarveiðiskip, Ruth, afhent samnefndu útgerðarfélagi í Hirtshals í Danmörku. Skipið er 87,80 metra langt og 16,60 metra breitt, smíðað hjá Karstensen skipasmíðastöðinni, og hið fyrsta sinnar gerðar sem útbúið er til að draga tvö flottroll samtímis. Veiðarfærin eru frá Cosmos Trawl, dótturfélagi Hampiðjunnar í Danmörku, og eru þau og tilheyrandi búnaður sniðinn að þörfum útgerðarinnar.

 

Að sögn Arne Olesen Sölu-og tæknistjóra hjá Cosmos Trawl er nýjungin varðandi útfærsluna á Ruth sú að skipið er útbúið með þremur togvindum og það getur togað samtímis með tveimur stórum flottrollum eða einu trolli sem þá er útbúið með svokölluðum buxnapoka. Það þýðir að á trollinu eru tveir pokar eða spenar sem hægt er að dæla úr samtímis með tveimur fiskdælum sem eru bakborðs- og stjórnborðsmegin aftan á skipinu. Fyrir vikið er minni þrýstingur á fiskinum en ef veitt væri með flottrolli með einum togpoka og gæði hráefnisins verða að sama skapi mun meiri.

 

Það er ekkert nýtt að skip veiði með fleiru en einu trolli samtímis enda eru slíkar veiðar algengar þegar botntroll eru annars vegar. Smærri skip hafa veitt með tveimur litlum flottrollum en þetta er í fyrsta skipti sem þessari tækni er beitt á stóru skipi, hvað þá svo stóru skipi sem Ruth svo sannarlega er, segir Arne Olesen.

Veiðarfærabúnaðurinn sem Cosmos Trawl seldi til notkunar um borð í Ruth samanstendur af eftirtöldu:

 

Til veiða á síld og makríl:

Tvö Helix flottroll með 1.216 metra ummáli.

Tveir millihólkar (á milli belgs og poka) til veiða með tveimur trollum samtímis.

Tveir millihólkar/buxnapokar til veiða með einu flottrolli og tveimur pokum samtímis.

 

Til veiða á sandsíli og spærlingi:

Tvö 10.000 möskva ,,slugehalstroll“ (kokgleypitroll) með 800 metra ummáli.

Tveir millihólkar vegna veiða með tveimur trollum samtímis.

Tveir millihólkar/buxnapokar til veiða með einu flottrolli og tveimur pokum samtímis.

Tveir pokar fyrir sandsíli og tveir pokar fyrir spærling.

Ýmiss DynIce búnaður.

 

Vert er að taka fram að ,,slugehalstrollin“, sem nefnd eru hér að framan, eru ekki þekkt eða notuð á veiðum við Ísland. Því vantar gott íslenskt heiti á þessi veiðarfæri þótt hér hafi verið notast við ,,kokgleypitroll.“

 

Haraldur Árnason Framkvæmdastjóri Cosmos Trawl í Danmörku segir að þessi aðferð að draga tvö flottroll sé mjög spennandi verkefni. Tilraunatankurinn í Hirtshals hafi verið notaður til að þróa þessa tækni með tæknimönnum Cosmos Trawl í mjög góðu samstarfi við skipstjóra og eigendur útgerðarinnar sem hafa gengið með þessa hugmynd í maganum lengi. Módelin komi vel út í tanki, en auðvitað sé annað mál að prófa þetta við raunverulegar aðstæður en allar tilraunir sem gerðar voru lofa góðu. Fyrirhugað er að byrja að prófa þessa aðferð í þessum mánuði og munum við fylgjast vel með því ferli í góðu samstarfi við áhöfn og útgerð.