Skip to main content

Danska fyrirtækið Thyborøn Trawldoor hefur þróað sjálfvirkan hæðarnema fyrir toghlera sem heldur þeim í fyrirfram skilgreindri hæð yfir sjávarbotni meðan á veiðum stendur. Fyrir voru hlerarnir búnir sjálfvirkum dýptarmæli sem gerir kleift að stýra þeim á ákveðinni dýpt undir yfirborði sjávar, en með nýja kerfinu bætist við bein stjórn á fjarlægð frá botni.

Stýribúnaður hleranna í brú.

Hæðarstýringin byggir á skynjurum sem fylgjast stöðugt með stöðu hleranna gagnvart hafsbotninum og senda gögn til stýrikerfis í brú skipsins. Þar er æskileg hæð stillt og kerfið heldur henni sjálfkrafa þrátt fyrir breytingar á dýpi, botngerð eða togálagi. Með þessu minnkar þörf á handvirkum inngripum og hegðun veiðarfæranna verður stöðugri og fyrirsjáanlegri.

Markmiðið er að draga úr snertingu við sjávarbotn. Það getur minnkað rask á botni og lækkað viðnám við veiðar, sem aftur hefur áhrif á eldsneytisnotkun. Jafnframt má búast við minna sliti á skóm, slitjárnum og öðrum búnaði hleranna.

Kerfið hefur verið þróað og prófað í raunverulegum aðstæðum um árabil og er nú komið í notkun, bæði við botntroll og í flottrolls- og miðsjávarveiðum. Fyrirtækið býður í dag upp á þrjár gerðir fjarstýrðra hlera þar sem stilla má stærð og virkni frá brú skipsins: Týpu 32 og Týpu 42 fyrir uppsjávar- og miðsjávarveiðar og Týpu 28 fyrir botnfiskveiðar. Um fimmtíu skip í uppsjávar- og miðsjávarveiðum eru nú búin fullfjarstýrðum og WiFi-stýrðum hlerum og tvö skip hafa tekið í notkun fullfjarstýrða Týpu 28 botnhlera. Fjöldi nýrra verkefna er jafnframt í undirbúningi.

Hampiðjan er umboðsaðili Thyborøn Trawldoor á Íslandi.