Skip to main content

Árleg ferð Hampiðjan Ísland í tilraunatankinn í Hirtshals í Danmörku verður farin dagana 26.-30. nóvember n.k. Tankferðirnar hafa notið mikilla vinsælda en í þeim eru veiðarfæri, bæði botn- og flottroll, sýnd og prófuð og fá þátttakendur einstakt tækifæri til að auka þekkingu sína og kynnast því hvernig mismunandi veiðarfæri haga sér í sjónum við raunverulegar aðstæður. Þar gefst líka kostur á að koma með ábendingar og athugasemdir um veiðarfærin sem nýtast í áframhaldandi þróun þeirra. Meginhluti dagskrárinnar fer fram í tilraunatankinum, en einnig verða fræðandi kynningar og heimsóknir til áhugaverðra fyrirtækja sem tengjast sjávarútvegi.

Tankferðirnar hafa verið árlegur viðburður í áratugi. Þar hittast skipstjórar, stýrimenn, útgerðarstjórar, veiðarfæratæknar og aðrir sérfræðingar úr sjávarútvegi víða að úr heiminum. Á síðasta ári sóttu yfir 70 manns viðburðinn, frá Íslandi, Færeyjum, Danmörku, Noregi, Írlandi og Nýja Sjálandi.

Ferðir Hampiðjunnar í tilraunatankinn eru þekktar fyrir fjölbreytta dagskrá og tækifæri til tengslamyndunar en þær bjóða upp á fræðslu á daginn og góðan félagsskap á kvöldin þar sem tengsl eru efld og ný mynduð. Að lokinni dvöl í Hirtshals munu þátttakendur halda til Kaupmannahafnar sem verður komin í jólabúning. Möguleiki er að framlengja dvölina yfir helgi og skoða borgina með mökum sem myndu þá koma til Kaupmannahafnar á föstudeginum.

Ferðirnar til Hirtshals eru einstakt tækifæri til að:
Fræðast og læra: Við bjóðum upp á fjölbreytta dagskrá með kynningum og heimsóknum til fyrirtækja.
Byggja upp tengslanet: Þessar ferðir eru þekktar fyrir frábæran félagsskap þar sem tengsl eru efld og ný mynduð.
Njóta skemmtunar og slökunar: Að lokinni dvöl í Hirtshals munu þátttakendur halda til Kaupmannahafnar þar sem er tilvalið að njóta jólastemningarinnar, og skoða borgina nánar með samstarfsaðilum eða maka.

Við hvetjum þá sem áhuga hafa á veiðarfærum að taka þátt í þessari fræðandi og skemmtilegu ferð til Hirtshals, þar sem nýjustu framfarir í fiskveiðum verða kynntar.

Frekari upplýsingar:

Einar P. Bjargmundsson, sími 664 3360 eb@hampidjan.is

Jónas Þór Friðriksson, sími 664 3330, jonas@hampidjan.is