Skip to main content

DYNICE DUX DRÁTTARTÓG

Nuddþolið dráttartóg sem skrapast ekk við málað eða galvaniserað yfirborð.

DUX DRÁTTARTÓG

DynIce Dux dráttartóg er sérstaklega hannað til nota við erfiðar aðstæður og mikið nuddálag. Hitavarin hífðarkápa er þéttfléttuð utan um tógið með hátæknitrefjum á borð við Technora og Vectran.

Vegna þess hve létt þau eru henta DynIce Dux dráttartóg til notkunar í snjó, ám og votlendi þar sem þau fljóta en grafast ekki niður.

Notkunaröryggi er meira þar sem bakslag er sama og ekkert þvi línan er fislétt í samanburði við stálvír.