DYNICE FRAMLENGINGAR
Léttar framlengingar sem auðvelt er að meðhöndla í torfærum og þær fljóta á vatni, leðju, sandi og snjó.
Léttar framlengingar sem auðvelt er að meðhöndla í torfærum og þær fljóta á vatni, leðju, sandi og snjó.
Stundum er dráttatógið ekki nógu langt til að ná til hins bílsins eða næstu festingar. Þá eru DynIce framlengingar fullkomin lausn.
DynIce 75 framlengingarnar eru splæstar með kósum úr ryðfríu stáli á hvorum enda og með krók sem auðvelt er að krækja við sitthvoru megin.
Framlengingarnar eru ýmist með eða án Dyneema® hlífar. Án hlífarinnar er kaðallinn afar sveigjanlegur og hægt er að geyma hann í litlu geymsluhólfi. Hlífin eykur slitþol við notkun í torfærum og verndar kaðalinn fyrir leðju og sandi.