TROLL

Við vitum að gæðavara fæst ekki með því að stytta sér leið eða spara skildinginn.
Því gerum við hvorugt.

GLORÍU ÞANTROLL

Gloríu flottrollin eru talin fremst í sínum flokki um allan heim. Markmið okkar er að þau séu öðrum fremri á öllum sviðum – fangi meiri fisk, séu meðfærilegri og endist lengur.

ÞETTA ER ÞAÐ SEM VIÐ HÖFUM ÁVALLT Í HUGA:

  • Toggeta skipa er mismunandi og því er hvert Gloríutroll sniðið að toggetu viðkomandi skips.
  • Hönnunin miðast sérstaklega við þær fisktegundir sem á að veiða.
  • Gloríu flottrollin eru úr vönduðu og nuddþolnu efni og þau endast því a.m.k. tvöfalt lengur en troll úr hefðbundnum og óvörðum efnum.
  • Kápufléttuðu kaðlarnir, Pepa eða Helix, fyrir framan belginn eru þéttfléttaðir og stífir og yfirborð þeirra viðnámslítið.  Því er sérstaklega auðvelt að kasta trollunum og fá þau klár.
  • Helix þantæknin heldur trollunum opnum í beygjum og þau fiska því allan þann tíma sem tekur að snúa við.

BOTNTROLL

Við erum með mikið úrval af botntrollum og snurvoðum til allra veiða, þar á meðal bolfisk-, flatfisk-, rækju- og humarveiða.

Botntrollin okkar eru afar skilvirk, hvort sem er á grunn- eða djúpsævi, og eru hönnuð til þess að fást við hinar ýmsu aðstæður á hafsbotni. Hönnunin er byggð á áratuga reynslu, tölvulíkönum, prófunum í tilraunatönkum og athugunum á vettvangi. Með því að notast við nýjustu tækni í hönnun og efnivið getum við fullvissað viðskiptavini okkar um að þeir fái bestu lausnina sem til er; lausn sem er sérsniðin að skipi þeirra og veiðiþörfum.