Hopparalengjur frá Mørenot og Hampiðjunni hafa verið í notkun í Noregi með góðum árangri undanfarin tvö ár og eru nú komnar um borð í fjögur skip þar í landi ásamt einu í Þýskalandi og öðru í Bretlandi. Á Íslandi hefur Björg EA 7 verið með nýjustu gerð af Flow Gear í notkun. Það eru því 7 skip sem eru útbúin með Flow Gear nú þegar og tvö skip til viðbótar, í Noregi og Þýskalandi, bíða eftir afhendingu þannig að áhuginn á þessari framþróun er mikill.
Hopparalengjan er byggð upp af hálfhringlaga einingum úr þykku plasti í stað hefðbundinna gúmmíhringja. Við veiðar með gúmmíhopparalengjum lyftist stór hluti lengjunnar upp þegar hún rekst á fyrirstöður. Með Flow Gear lengjunni lyftast hins vegar aðeins þær plötur sem fara yfir fyrirstöður og það hefur reynst skila betri veiðni við krefjandi aðstæður.
Botnveiðarfæri hér við land eru að jafnaði frábrugðin þeim sem notuð eru í Noregi, enda er botnlag við Íslandsstrendur yfirleitt grófara og harðara en annars staðar við N-Atlantshafið og það krefst öflugri og sterkari Flow Gear hopparalengju til að þola álagið.
Því var ráðist í að þróa lengjuna enn frekar í samstarfi við Samherja til að aðlaga hana betur að íslenskum aðstæðum. Prófanir hófust um borð í Björgu EA 7 þar sem búnaðurinn hefur verið í notkun að mestu leyti frá miðjum janúar.
Þróunin hefur farið fram í nánu samstarfi við áhöfn skipsins og ráðleggingar og ábendingar frá skipstjórunum Guðmundi Frey Guðmundssyni og Árna Rúnari Jóhannessyni hafa verið mikilvægar til að skilja betur hvað þyrfti að bæta og lagfæra. Hönnuninni hefur verið breytt til að hlífa plastinu betur og gefa plasthálfhringnum betra svigrúm til að beygjast undan átakinu þegar hann lendir á grjóti og klettum og sveigjast til baka í sitt rétta form þegar átakið hverfur. Einnig er búið að útfæra slitfleti betur og koma í veg fyrir að boltar sem halda slitvörninni brotni undan álaginu. Net átti til að dragast inn í hálfhringinn aftanfrá og rifna en nú er búið að koma í veg fyrir það með ávölum boltum og skipta út keðjum sem brotnuðu með mjúku Robus ofurtógi.
„Það hefur verið einstaklega ánægjulegt og gefandi að vinna með áhöfninni á Björgu EA 7 að þessari þróun. Um þessar mundir erum við að ljúka breytingum og uppfærslu á síðustu plötum lengjunnar, sem mun lengja líftíma hennar verulega. Það verður spennandi að fylgjast með framhaldinu,“ segir Einar Skaftason, veiðarfærahönnuður hjá Hampiðjunni.
Nýja hönnunin minnkar álag á búnaðinn og stuðlar að betri opnun og stöðugleika trollsins. Jafnframt benda prófanir til að vatnsflæði upp og yfir lengjuna beini fiski betur inn í veiðarfærið.
Við þróunina hefur jafnframt verið horft til þess að draga úr umhverfisáhrifum þar sem lengjan hefur minni áhrif á botninn samanborið við hefðbundnar gúmmíhringjalengjur.
Flow Gear lengjan um borð í Björg er c.a. 6 tonnum léttari en sambærileg gúmmí hopparalengja og er mun meðfærilegri á dekki. Minna álag er á vindum í hífingu og köstun, hún tekur minna pláss og auðveldara er að skipta um einingar í lengjunni um borð ef á þarf að halda.
Með þessum síðustu endurbótum á Flow Gear lengjunni má segja að hún sé orðin það vel hönnuð og útfærð, til að þola íslenskar aðstæður, að ekkert standi nú í vegi fyrir því að hún fari í almenna sölu.
Sótt var um einkaleyfi á Flow Gear lengjunni fyrir nokkrum árum og er einkaleyfisumsókin komin vel á veg.
Nánari upplýsingar um lengjuna má finna hér:
Byltingarkenndir hálfhringshopparar í stað rockhopper – Hampiðjan
Ljósmynd af Björg EA 7: Vigfús Markússon.

