Vertu skrefi á undan og skráðu þig á póstlistann

Fréttir og nýjungar frá Hampiðjunni beint í pósthólfið.

Norska fiskeldisfyrirtækið Lerøy Sjøtroll hefur samið við ELDI Aqua um kaup og uppsetningu á BioSeize kerfi til söfnunar og meðhöndlunar lífrænna efna sem falla til í sjókvíaeldi fyrirtækisins.

Samningurinn markar mikilvæg tímamót fyrir BioSeize, sem hefur verið þróað og prófað í nánu samstarfi við fiskeldisfyrirtæki undanfarin ár. Lerøy mun setja BioSeize kerfið upp á eldisstað sínum við Blom í Noregi.

BioSeize varð til í nánu samstarfi ELDI Aqua, Rotor Aqua og Lerøy Sjøtroll. Með kerfinu má safna fóðurleifum og úrgangi fiska í sjókvíaeldi og varðveita gæði þess þannig að hægt sé að nýta það áfram sem verðmætt hráefni.

Með hefðbundnum aðferðum getur úrgangurinn orðið fyrir miklu álagi við dælingu undan fiskeldiskvínni og upp á yfirborðið, sem getur dregið úr möguleikum til frekari nýtingar.

BioSeize kerfið samanstendur af tveim meginhlutum, ConeCollect sem er þéttriðið keilulaga söfnunarnet sem er undir eldiskvínni og sem beinir úrgangi i trekt neðst í netinu. Við trektina er síðan dælukerfið Fish/It sem flytur úrganginn upp á yfirborðið með sogkrafti og innflæði af ósöltu vatni.

Lífrænn úrgangur sem safnað er með BioSeize getur meðal annars nýst til framleiðslu á áburði, líforku eða annarri verðmætaskapandi framleiðslu.

Við þróunina hefur sérstök áhersla verið lögð á rekstraröryggi, orkunýtingu og að auðvelt sé að samþætta þessa lausn öðrum búnaði sem notaður er í fiskeldi. Jafnframt hefur verið lögð áhersla á að kerfið sé einfalt í uppsetningu og daglegum rekstri.

„Sú ákvörðun Lerøy að velja BioSeize fyrir eldisstöð sína við Blom staðfestir að kerfið mætir raunverulegri þörf hjá leiðandi fyrirtæki í fiskeldi. Þetta eru því mikilvæg tímamót fyrir okkur eftir margra ára þróunarvinnu. BioSeize stuðlar að betri nýtingu lífræns efnis sem til fellur í lagareldi, það notar minni orku, tekur minna pláss og einfaldar bæði rekstur og viðhald. Hönnun nets og söfnunarkerfisins tryggir einnig að mismunandi efnisstraumar séu aðskildir, sem eykur möguleika á frekari nýtingu þess efnis sem safnað er,“ segir Thomas Myrvold, forstjóri ELDI Group.

Áhugi á BioSeize hefur aukist jafnt og þétt undanfarin misseri og fyrirspurnir um kerfið berast nú frá fleiri mörkuðum. Samningurinn við Lerøy er mikilvægt skref fyrir ELDI Aqua og áframhaldandi þróun fyrirtækisins á nýjungum fyrir fiskeldi.