66°Norður hefur kynnt nýja vörulínu í tilefni af 100 ára afmæli fyrirtækisins þar sem innblásturinn kemur úr netagerð og íslenskum sjávarútvegi. Í línunni eru meðal annars útivistar- og sundfatnaður, taska, belti og lyklakippa. Taskan er gerð með ytra lagi úr notuðu ofurneti frá Hampiðjunni.
Að baki verkefninu liggur um árslangt samstarf 66° Norður og Hampiðjunnar. Starfsfólk Hampiðjunnar tók virkan þátt í verkefninu frá upphafi en markmiðið var að finna net sem hentaði bæði tæknilega og sjónrænt fyrir hönnun vörunnar. Á því tímabili voru fjölmargar gerðir neta skoðaðar og prófaðar þar sem metnir voru þættir á borð við hráefni, þykkt, möskvastærð, lit og hvort netið væri með íburðarefni eða ekki. Í leitinni að rétta efninu voru hönnuðir 66°Norður meðal annars í sambandi við Hampidjan Baltic í Litháen til að skoða hvaða möguleikar væru þar fyrir hendi. Einnig voru myndir fyrir vörulínuna teknar á netaverkstæði Hampiðjunnar í Skarfagörðum. Á endanum var valið notað ofurnet sem heldur einkennum sínum úr sjávarútveginum en fellur um leið vel að hönnun og notkun vörunnar.
Samstarfið tengir saman tvö íslensk fyrirtæki sem eiga langa sögu í þjónustu við sjávarútveg. 66°Norður var stofnað árið 1926 sem Sjóklæðagerð Íslands og framleiddi hlífðarfatnað fyrir íslenska sjómenn. Hampiðjan var stofnuð árið 1934 og hefur í rúma níu áratugi þróað og framleitt net, veiðarfæri og tengdar lausnir fyrir sjávarútveg.
Þótt fyrirtækin hafi þróast í ólíkar áttir eiga þau sameiginlegan uppruna. Bæði urðu til til að mæta þörfum þeirra sem störfuðu á sjó og hafa byggt upp þekkingu og vörur sem standast krefjandi aðstæður. Í þessari afmælislínu eru endurnýtt net frá Hampiðjunni sem fá nýtt hlutverk og verða hluti af hönnun sem sækir innblástur í sögu íslensks sjávarútvegs.
Vörulínuna má sjá hér.

