Hampiðjan tekur þátt í IceFish 2026, Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýningunni, sem fram fer í Fífunni í Kópavogi dagana 22.–24. september. Hampiðjan verður á básum D50, E32, E30 og E42 og þar verður hægt að kynna sér fjölbreytt úrval búnaðar og lausna fyrir sjávarútveg og fiskeldi.
Sérstök áhersla verður lögð á nýjar lausnir fyrir fiskeldi, BioSeize, MarWall og MarDeep, auk Flow Gear fyrir botntroll. Einnig verður hægt að kynna sér Injector og Thyborøn toghlera ásamt góðu úrvali rekstrarvara fyrir sjávarútveg, fiskeldi og aðra matvælavinnslu.
Fiskeldisstarfsemi Hampiðjusamstæðunnar hefur verið sameinuð undir merkjum dótturfyrirtækisins ELDI, sem verður áberandi á sýningunni í ár. BioSeize er kerfi sem safnar óétnu fóðri og lífrænum hliðarafurðum úr fiskeldi og flytur efnið upp á yfirborð til frekari meðhöndlunar og nýtingar. Markmiðið er bæði að draga úr uppsöfnun lífræns efnis undir kvíum og skapa verðmæti úr efni sem annars færi til spillis.
MarWall og MarDeep eru tvær ólíkar lausnir sem miða að því að bæta aðstæður í fiskeldi. MarWall er hálflokuð kvíalausn sem nýtir sjó úr dýpri lögum, meðal annars til að draga úr hættu á laxalús og bæta vatnsgæði í kvínni. MarDeep byggist hins vegar á því að sökkva eldiskvínni niður fyrir yfirborðslag sjávar þar sem aðstæður geta verið stöðugri og dregið úr áhrifum laxalúsar, veðurs og annarra aðstæðna við yfirborðið.
Á sviði veiðarfæra verður Flow Gear í sviðsljósinu. Lausnin kemur í stað hefðbundinna rockhopper-lengja á botntrollum og byggist á hálfhringlaga einingum sem eru hannaðar til að draga úr mótstöðu í sjó og við sjávarbotn. Flow Gear var fyrst kynnt á IceFish 2024 og hefur síðan verið prófað og þróað áfram með það að markmiði að bæta virkni búnaðarins og laga hann enn betur að íslenskum aðstæðum.
Á sýningunni verður jafnframt hægt að kynna sér Injector og Thyborøn toghlera og ræða við starfsfólk Hampiðjunnar um mismunandi gerðir og lausnir. Þá verður boðið upp á fjölbreytt úrval rekstrarvara fyrir sjávarútveg, fiskeldi og matvælavinnslu, meðal annars vinnu- og öryggisfatnað, hreinlætisvörur og aðrar vörur fyrir daglegan rekstur.
IceFish hefur um árabil verið mikilvægur vettvangur fyrir Hampiðjuna til að kynna nýjungar, eiga samtal við viðskiptavini og hitta samstarfsaðila úr sjávarútvegi og fiskeldi. Starfsfólk Hampiðjunnar og ELDI tekur á móti gestum á sýningunni og kynnir þar vörur og lausnir fyrir fjölbreyttar þarfir greinanna.

