Vertu skrefi á undan og skráðu þig á póstlistann

Fréttir og nýjungar frá Hampiðjunni beint í pósthólfið.

Hampiðjan hlaut í gær nýsköpunarverðlaun á IceFish 2026 fyrir BioSeize, lausn sem þróuð hefur verið til að safna lífrænum úrgangi frá fiskeldi áður en hann  fellur til botns. Verðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Salnum í Kópavogi í tengslum við Íslensku sjávarútvegs- og fiskeldissýninguna – IceFish.

Verðlaunagripurinn.

BioSeize hlaut verðlaunin í flokki nýsköpunar í fiskeldi. Kerfið safnar meðal annars fóðurleifum og öðrum lífrænum efnum sem annars myndu falla niður úr sjókvíum. Með lausninni er þannig hægt að draga úr uppsöfnun lífræns efnis undir eldissvæðum og jafnframt skapa möguleika á að nýta efnið sem safnað er.

BioSeize er hluti af lausnum ELDI fyrir fiskeldi og er sýnt á IceFish ásamt fleiri nýjungum fyrirtækisins.  Þar má einnig nefna MarWall sem er hálflokuð kví með uppdælingu á súrefnisíblönduðum sjó af töluverðu dýpi og MarDeep sem er niðursökkvanleg kví.

Nathan Breeze, sölustjóri Eldis tekur við verðlaununum úr hendi Rúnars Magna Jónssonar frá Arion banka.

Kerfið byggir á sérhæfðu safnneti, ConeCollect, sem komið er fyrir undir kvínni og leiðir lífrænt efni að söfnunarbúnaðinum Fish/It. Markmiðið er að ná efninu úr sjónum á skilvirkan hátt og með sem minnstri sjávarseltu , þannig að auðveldara verði að meðhöndla það og nýta áfram.

BioSeize hefur þegar verið tekið í notkun í tilraunaskyni hjá fiskeldisfyrirtækinu Lerøy Sjøtroll í Blom í Noregi.  Lerøy er annað af stærstu laxeldisfyrirtækum heims og framleiðir árlega rúmlega 200.000 tonn af eldisfiski. BioSeize kerfið virkar afar vel og langt umfram væntingar því magnið sem safnast er mun meira en búist var við.

IceFish 2026 stendur yfir í Smáranum/Fífunni í Kópavogi dagana 22.–24. september. Hampiðjan og fyrirtæki innan samstæðunnar kynna þar fjölbreyttar lausnir fyrir sjávarútveg og fiskeldi.

Bás Hampiðjunnar á IceFish. Fremst á myndinni má sjá módel af BioSeize.