Vertu skrefi á undan og skráðu þig á póstlistann

Fréttir og nýjungar frá Hampiðjunni beint í pósthólfið.

Það var líf og fjör hjá Hampiðjunni í lok síðasta mánaðar þegar haldin voru námskeið um örugga notkun lyfti- og festibúnaðar í samstarfi við Crosby University. Námskeiðin sóttu rúmlega 50 manns samtals, en auk tveggja námskeiða fyrir viðskiptavini og aðra áhugasama var haldið sérstakt námskeið fyrir starfsfólk Hampiðjunnar.

Leiðbeinandi námskeiðanna var Frédéric Crynen, fræðslustjóri EMEA hjá Crosby, en hann hefur umsjón með fræðslu og þjálfun á vegum fyrirtækisins í Evrópu, Mið-Austurlöndum og Afríku.

Á námskeiðunum var farið ítarlega yfir grunnatriði við notkun lyfti- og festibúnaðar með áherslu á öryggi, rétt val á búnaði og mikilvægi reglubundins eftirlits. Meðal þess sem tekið var fyrir voru áhættumat og undirbúningur lyftinga, þyngdarpunktar, festipunktar og rétt notkun króka, tengihlekkja og lása. Einnig var fjallað um skoðun lyftibúnaðar og einstakra íhluta, auk þess sem verkleg dæmi voru notuð til að varpa ljósi á aðstæður sem geta komið upp við lyftingar.

Þátttakendur komu víða að og úr ólíkum starfsgreinum. Margir starfa hjá verktaka- og iðnfyrirtækjum þar sem lyftingar eru hluti af daglegum verkefnum, en hópurinn endurspeglaði jafnframt hversu fjölbreytt notkun lyftibúnaðar er. Slíkur búnaður er til dæmis einnig notaður í leikhúsum við uppsetningu sviðsmynda, lýsingar og annars tæknibúnaðar. Óháð því hvar búnaðurinn er notaður skiptir miklu máli að þeir sem með hann vinna hafi þekkingu á eiginleikum hans, takmörkunum og öruggri notkun.

Góður rómur var gerður að námskeiðunum og þátttakendur sýndu efninu mikinn áhuga. Fjölmargar spurningar komu fram og líflegar umræður sköpuðust um ýmis atriði sem tengjast notkun lyftibúnaðar. Þátttakendur gátu meðal annars rætt aðstæður úr eigin starfsumhverfi og fengið svör við spurningum um val, meðhöndlun og skoðun búnaðar.

Námskeiðin fóru fram á ensku og fengu þátttakendur ítarlegt námsefni frá Crosby University, meðal annars handbækur og vörulista, auk þátttökuskírteinis.

Hampiðjan býður fjölbreytt úrval lyfti- og festibúnaðar og leggur áherslu á að viðskiptavinir hafi aðgang að fræðslu og ráðgjöf um rétta og örugga notkun hans. Námskeiðin voru liður í þeirri viðleitni að efla þekkingu og stuðla að öruggari vinnubrögðum hjá þeim fjölbreytta hópi sem notar lyftibúnað í störfum sínum.